Umsókn Sígildir sunnudagar

Harpa auglýsir eftir þátttakendum í tónleikaröðinni Sígildir sunnudagar veturinn 2026-2027.

Sígildir sunnudagar er regnhlífarhugtak yfir klassískar tónleikaraðir og staka viðburði í Norðurljósum/Kaldalóni á sunnudögum kl 16:00, frá hausti 2026 og fram á vor 2027. Með röðinni gefst áheyrendum kostur á reglulegum, fyrsta flokks kammertónleikum í Hörpu. Lögð er áhersla á fjölbreytt úrval tónleika með sígildri söng- og hljóðfæratónlist.

Sem fyrr er skipulag tónleika í höndum tónlistarmannanna sjálfra en Harpa veitir stuðning með 50% afslætti á salarleigu, auk þess sem tónleikaröðin er kynnt með áberandi hætti í miðlum Hörpu, með það að markmiði að stækka áheyrendahóp klassískra kammertónleika.

Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2026.

Umsóknareyðublað

Tilgreinið hvort óskað er eftir því að halda eina eða fleiri tónleika yfir veturinn

Óskadagsetning/ar fyrir hverja tónleika. Varadagsetning fyrir hverja tónleika.*

Athugið að aðeins eru örfáir dagar lausir fyrir áramót, en fleiri eftir áramót. Tónleikaraðir ganga fyrir stökum viðburðum.

Drög að efnisskrá fyrir hverja tónleika.*

*Þessa reiti þarf að fylla út