Stýrihópur um sjálfbærni, umhverfisráð, hefur starfað í rúm fjögur ár og unnið ötullega að því að gera umbætur hvað varðar sjálfbærni, setja markmið og hrinda af stað aðgerðaáætlun. Reglulegir fundir eru hjá umhverfisráði þar sem árangur er metinn, hvað má betur fara og forgangsröðun og markmið eru yfirfarin svo eitthvað sé nefnt. Áhersla er lögð á að fræða starfsfólk með reglulegum kynningum á starfsmannafundum og gott samstarf er við íbúa og rekstraraðila í húsinu um fræðslu og hvatningu í tengslum við sjálfbærni. Auk þess sér umhverfisráðið, í samráði við markaðsstjóra félagsins, um að upplýsa bæði starfsfólk og gesti hússins um þá áfanga sem náðst hafa.
Loftslagsmál
Í nóvember 2015 undirritaði forstjóri Hörpu yfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar í loftlagsmálum, sem var kynnt á Parísarráðstefnunni um loftslagsmál í desember sama ár.
Árið 2021 gaf Harpa gaf út Umhverfis- og loftslagsstefnu og hefur unnið að því með markvissum hætti að vera fyrirmynd í umhverfis- og loftslagsmálum og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi sinni. Ári seinna kom út aðgerðaáætlun Hörpu í loftlagsmálum 2022 – 2024 en hún inniheldur töluleg og tímasett markmið til þess að draga markvisst úr losun fyrirtækisins.
Loftlagseftirlit
Umhverfisráð hefur yfirumsjón með og stýringu loftslagstengdrar áhættu hjá Hörpu. Loftslagsþættir og önnur mál tengd loftslagi eru tekin á dagskrá ráðsins á mánaðarlegum fundum, þar sem fylgst er með áætlun um loftslagsáhættur, staðan metin og mótvægisaðgerðir settar fram ef þess þarf. Einnig eru þar sem er metið, fylgst með og áætlað loftslagsáhættu og mótvægisaðgerðir ásamt þeim tækifærum sem geta falist í því.
Samkvæmt Loftlagsstefnu stjórnarráðsins eru gerðar kröfur um að allar ríkisstofnanir uppfylli öll fimm Grænu skrefin fyrir árslok 2021.