Sinfónía og hiphop dans mætast í fyrsta sinn á Íslandi!
Hljómsveitin Geneva Camerata og krumpdansarar í Eldborg 14. júní 2025.
Harpa kynnir einstakan viðburð í Eldborg með hljómsveitinni Geneva Camerata þar sem krumpdans sameinast einu mesta meistaraverki tónlistarsögunnar, 5. sinfóníu Dmitris Shostakovítsj.
Fimmta sinfónía Shostakovitsj (1908 – 1975) var frumflutt í Leníngrad árið 1937 þegar ofsóknir Stalín stóðu sem hæst. Verkið er gríðarlega áhrifamikið, fullt af nístandi sársauka sem og himneskri fegurð. Hér er magnþrunginni tónlist Shostakovitsj teflt saman við krumpdans, kraftmikinn street dans sem þróaðist í Los Angeles í kringum síðustu aldamót. Sviðsetning er eftir Kader Attou, margverðlaunaðan danshöfund og brautryðjanda á sviði hip-hop dansmenningar á heimsvísu og dansarann og danshöfundinn Grichka.
Hljóðfæraleikarar Geneva Camerata spila á hljóðfæri sín og dansa ásamt fjórum krump-dönsurum, þeim Grichka, Melissu, Dexter og Hendrickx. Útkoman er gríðarlega kraftmikill gjörningur sem talar beint inn í samtímann og snertir á málum á borð við skilning, frelsi og umburðarlyndi.
Viðburðurinn hefst á sérstöku opnunaratriði þar sem hljómsveit og dansarar flytja verkið Battle Zone eftir Alexandre Mastrangelo (f. 1989). Verkið er glænýtt, pantað af hljómsveitinni og er samið fyrir REVOLTA-viðburðinn.
Um Geneva Camerata
Geneva Camerata (GECA) hefur vakið heimsathygli fyrir ferska og nýstárlega nálgun sína við klassíska tónlist. Hljómsveitin var stofnuð árið 2013 af hinum víðkunna píanóeinleikara og hljómsveitarstjóra David Greilsammer. GECA er rómuð fyrir nýsköpun á sviði sígildrar tónlistar þar sem hún hefur þanið út mörk hins sígilda tónleikaforms og starfað með listafólki úr ólíkum listgreinum, svo sem úr leikhúsi, myndlist, dansi og sirkuslistum. Efnisskrá hennar er víðfeðm og margbreytileg þar sem hún tekst á við fjölbreyttar tónlistarstefnur, sígilda og samtímatónlist, jazz, rokk og raftónlist.
Hljómsveitin hefur aðsetur í Genf og er skipuð um sextíu framúrskarandi hljóðfæraleikurum sem koma frá öllum heimshornum. GECA hefur leikið með fjölmörgum eftirsóttum einleikurum og komið fram á tónleikum í bæði virtum tónleikahúsum og óhefðbundnum tónleikarýmum víða um heim.
Listrænn stjórnandi GECA er David Greilsammer.
Revolta - Geneva Camerata
Árið 2005 uppgötvaði hann krump dansstílinn sem gerði honum kleift að tjá persónuleika sinn, andlega kraft og blandaðan uppruna. Hann ákvað fljótt að fara á upprunastað krumpsins og árið 2006 fór hann þangað sem allt byrjaði, í gettóin í Los Angeles. Árið 2008 gekk hann til liðs við NY Madness Fam í Bandaríkjunum þar sem hann var einn af frumkvöðlum krumphreyfingarinnar í Evrópu. Grichka hefur tekið þátt í fjölmörgum dansbardögum og hefur tvisvar sinnum unnið EBS heimsmeistaratitilinn í krumpdansi.
Melissa hefur verið dansari frá barnæsku en árið 2008 uppgötvaði hún krump hreyfinguna. Hún hefur unnið til nokkurra alþjóðlegra verðlauna í krump- og hip-hop danskeppnum og er einn af stofnendum Madrootz Collective - hópi evrópskra krump-brautryðjenda. Í gegnum árin hefur Melissa einnig tekið þátt í mörgum félags- og góðgerðarverkefnum og blandað dansi við manngildi sem henni eru kær.
Upprunalega frá Líberíu, Afríku, neyddist Dexter til að yfirgefa land sitt mjög ungur vegna pólitískra og hernaðarátaka. Dexter hefur helgað sig dansinum og árið 2006 uppgötvaði hann krump-hreyfinguna sem gerði honum kleift að þróa ákveðinn hreyfistíl. Hann hefur unnið fjölmargar alþjóðlegar keppnir og varð fljótt viðmið í afrísku hiphopsenunni.
David Greilsammer er viðurkenndur sem einn af djörfustu hljómsveitar- og píanóleikurum samtímans. David hefur verið lofaður fyrir Mozart túlkun sína og hefur leikið allar píanósónötur Mozarts í eins dags „maraþoni“ í París og nýlega lék hann og stjórnaði öllum tuttugu og sjö píanókonsertum Mozarts á níu tónleikum í röð. David hefur komið fram sem hljómsveitarstjóri/einleikari með BBC Philharmonic, San Francisco Symphony, Tokyo Metropolitan Orchestra, Hong Kong Philharmonic, Symphoniker Hamburg, Orchestra Verdi di Milano, Israel Symphony, Philharmonique de Radio France og Orquesta Sinfónica Naciónal de México.
Kader Attou er einn af stærstu frumkvöðlum nútíma- og hiphop dans og hefur gjörbylt heimi kóreógrafíu og street dans með húmanískri nálgun. Árið 2008 var Kader Attou ráðinn forstöðumaður Centre Chorégraphique National de La Rochelle og varð þar með fyrsti danshöfundurinn úr hip hop heiminum til að stýra landsstofnun í Frakklandi. Árið 2013 tók Kader Attou við stöðu Chevalier de l'Ordre des Arts et des Lettres af forseta franska lýðveldisins og árið 2015 var hann einnig nefndur Chevalier dans l'Ordre National de la Légion d'Honneur.