Klassík, Reykjavík Early Music Festival, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
5.900 - 7.900 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 24. mars - 19:00
Salur
Norðurljós
Blæbrigði barokktónlistar í Frakklandi og á Ítalíu á 17. öld voru gjörólík en þó leynir sér ekki að ítölsk áhrif skína einatt í gegn í franskri tónlistarsögu. Hirðtónskáld sólkonungsins, Jean-Baptiste Lully, fæddist til að mynda á Ítalíu og Parísarbúinn Élisabeth Jacquet de La Guerre var í hópi fyrstu tónskálda franskra sem tileinkuðu sér tríósónötuform Arcangelo Corelli og félaga. Georg Muffat, sem varð víðförull um dagana, skapaði hins vegar sinn eigin stíl sem var blanda þessara þjóðlegu hefða. Barokkbandið Brák beinir kastljósinu að gjöfulu samspili tveggja menningarheima á tónleikunum í samvinnu við Olivier Mourault, sem gefur áheyrendum færi á því að kynnast einstökum hljóðheimi náttúrutrompetsins.
Tónleikarnir eru um klukkutími án hlés.
Viðburðahaldari
Reykjavík Early Music Festival
Miðaverð er sem hér segir
A
7.900 kr.
A
5.900 kr.
A
7.900 kr.
A
5.900 kr.
Dagskrá
miðvikudagur 24. mars - 19:00
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu