Kór, Ókeypis

Verð
0 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 11. október - 14:00
Salur
Hörpuhorn
Laugardaginn 10. október bjóða nemendur í framhaldsskólum landsins almenningi að ræða um brýn viðfangsefni í samtímanum og framtíðarsýn. Fyrir fjörutíu árum settust leiðtogar tveggja stórvelda niður til samtals í Höfða, á tímum mikillar spennu og ótta í heiminum. Þeir leystu ekki allan ágreining sinn, en samtalið átti þátt í að breyta gangi sögunnar. Í dag, á tímum mikilla umbreytinga og hraðrar tækniþróunar, viljum við á ný skapa rými til að staldra við, hlusta og tala saman um hvernig samfélag við viljum skapa saman. Um allt land mun fólk hittast, hlusta hvert á annað og deila því sem skiptir okkur máli: vonum okkar, gildum og hugmyndum um framtíðina.
Sunnudaginn 11. október kl. 14 verður afrakstur Samtals kynntur í Hörpu. Ungt fólk mun miðla þeim gildum, vonum og hugmyndum sem hæst bar í Samtali og Skólakór Kársness, Stúlknakór Reykjavíkur, Aurorakórinn, Barnakórinn við Tjörnina, Fjallabræður og Karlakór Reykjavíkur syngja lög helguð friði og bjartri framtíðarsýn.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Viðburðahaldari
Harpa
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
sunnudagur 11. október - 14:00
Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu