Fjölskyldudagskrá Hörpu

Verð
0 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 24. janúar - 13:00
Salur
Flói
Barnatónleikar með Lúðrasveit verkalýðsins
Staður: Flói í Hörpu
Dagsetning: Sunnudagur 24. janúar
Tími: Kl. 13:00
Aldur: Fyrir börn og fjölskyldur
Aðgangur: Ókeypis og ekki þarf að sækja miða
Í samstarfi við: Lúðrasveit verkalýðsins
Athugið: Tónleikarnir geta verið háværir og henta því síður mjög ungum börnum og þeim sem eru viðkvæm fyrir miklum hávaða.
Lúðrasveit verkalýðsins býður börnum og fjölskyldum í fjöruga tónleika þar sem leikin verða skemmtileg barnalög, tónlist úr sjónvarpsþáttum og kvikmyndum og fleiri lög sem margir þekkja.
Á tónleikunum fá gestir að kynnast ólíkum hljóðfærum lúðrasveitarinnar og heyra hvernig þau hljóma hvert fyrir sig og öll saman.
Það verður nóg af stuði og stemningu þegar Flói fyllist af kröftugum tónum Lúðrasveitar verkalýðsins!
Viðburðahaldari
Dægurflugan
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
sunnudagur 24. janúar - 13:00
Flói er glæsilegt opið rými á fyrstu hæð sem hentar vel fyrir móttökur, veisluhöld, markaði eða sem sýningarsvæði. Fallegt útsýni er úr Flóa yfir Esjuna, höfnina og miðborgina.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu