Jólatónleikar, Sígild og samtímatónlist, Tónleikar

Verð
9.990 - 14.990 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 10. desember - 19:30
Salur
Norðurljós
ANNE SOFIE VON OTTER KEMUR FRAM Í HÖRPU Í FYRSTA SINN
Hin heimsþekkta óperusöngkona Anne Sofie von Otter stígur á svið í Hörpu í fyrsta sinn, fimmtudagskvöldið 10. desember nk. Með henni koma fram píanóleikarinn Bengt Forsberg, gítarleikarinn Fabian Fredriksson og sérstakur
gestur verður sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir.
Tónleikarnir verða með sannkölluðu hátíðaryfirbragði þar sem flutt verður sígild jólatónlist í bland við undurfalleg sönglög og tónlist frá ólíkum tímum, þar á meðal eftir Franz Schubert, Hugo Wolf, Jean Sibelius, J. S. Bach, Gabriel Fauré, Maurice Ravel, Arvo Pärt og fleiri.
Tónleikarnir marka jafnframt upphaf Ópus Reykjavík, nýrrar listviðburðaraðar Álfheiður Erlu Guðmundsdóttur, en markmið hennar er meðal annars að stuðla að skapandi samstarfi milli framúrskarandi listamanna og innlendrar listasenu. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Ópus Reykjavík og Hörpu.
Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum og sætaframboð takmarkað.
MIÐASALA HEFST ÞRIÐJUDAGINN 1. SEPTEMBER KLUKKAN 10.
Anne Sofie von Otter er ein fjölhæfasta og dáðasta söngkona sinnar kynslóðar og hefur verið í fremstu röð alþjóðlegs tónlistarlífs í fjóra áratugi. Verkefnaskrá hennar er óvanlega víðfeðm og fjölbreytt, hún hefur sungið í virtustu og eftirsóttustu óperuhúsum heims, er margverðlaunuð fyrir túlkun ljóðasöngs frá ólíkum tímum og hefur starfað náið með tónlistarfólki úr fjölbreyttum geirum, má þar nefna Elvis Costello, Brad Mehldau og Rufus Wainwright. Hljóðritaskrá hennar er sérdeilis glæsileg en hún er einn mest hljóðritaði listamaður okkar tíma, hefur sent frá sér meira en hundrað rómaðar plötur, langflestar hjá Deutsche Grammophon. Hún hefur hlotið fern Grammy-verðlaun og fjölmargar tilnefningar til sömu verðlauna auk ótal annarra verðlauna og viðurkenninga. Anne Sofie von Otter er listamaður í stöðugri þróun og tekst sífellt á við nýjar áskoranir.
Hún hefur starfað með stórum hópi samtímatónskálda og má þar nefna að sumarið 2026 fór hún með eitt aðalhlutverka í Passion of the Common Man eftir Daníel Bjarnason við frábærar undirtektir en heimsfrumflutningur verksins fór fram á tónlistarhátíðinni Bregenzer Festspiele í Austurríki.
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir er margverðlaunuð sópransöngkona og listamaður. Hún hefur komið fram í mörgum af fremstu óperu-og tónleikahúsum Evrópu, þar á meðal Staatsoper Berlin, Theater Basel, Elbphilharmonie, Concertgebouw í Amsterdam og Philharmonie de Paris og var valin ECHO Rising Star listamaður fyrir hönd Hörpu veturinn 2025 – 2026.
Álfheiður Erla vakti mikla athygli fyrir túlkun sína á Lísu í Undralandi í samnefndri óperu Unsuk Chin í Theater an der Wien á síðasta ári. Í vetur syngur hún í tveimur glænýjum sviðsverkum sem sett verða upp í Theater Basel; If I Do Not Return eftir Hania Rani og Herakles Mad eftir Bryce Dessner, unnið í samstarfi við Ragnar Kjartansson við líbrettó eftir Anne Carson.
Líkt og áður sagði eru tónleikarnir samstarfsverkefni Hörpu og Ópus Reykjavík, nýrrar listviðburðaraðar Álfheiðar Erlu Guðmundsdóttur.
„Anne Sofie hefur verið mér fyrirmynd allt frá því ég hóf söngnám. Forvitni hennar, einlægni og raddfegurð hafa haft djúp áhrif á mig og mótað mig sem söngkonu og listamann. Að fá nú að bjóða hana velkomna til Reykjavíkur og syngja með henni hefur því sérstaka merkingu fyrir mig. Ég gæti ekki hugsað mér betri byrjun fyrir Ópus Reykjavík.“
— Álfheiður Erla Guðmundsdóttir
Bengt Forsberg hefur um árabil verið einn virtasti og eftirsóttasti píanóleikari sinnar kynslóðar og átt í gjöfulu samstarfi við Anne Sofie von Otter um áratugaskeið. Þau hafa hljóðritað fjölda rómaðra platna sem vakið hafa heimsathygli og uppskorið ótal verðlaun og viðurkenningar, má þar nefna verðlaunaplötur með sönglögum eftir Edvard Grieg, Jean Sibelius og Franz Schubert auk fjölda annarra. Verkefnaskrá Forsberg er afar víðfeðm en hann hefur lagt sérstakta rækt við tónlist gleymdra og lítt þekktra meistara frá fyrri tíð. Á efnisskrá hans eru meðal annars einleiksverk fyrir píanó eftir Erich Wolfgang Korngold, Charles-Valentin Alkan, Emmanuel Chabrier og Kaikhosru Sorabji, og á upptökum hans má einnig finna verk eftir Godard, Boëllmann, Koechlin, Pierné og Alfvén. Hann hefur komið fram með fjölda listamanna sem túlkandi ljóðasöngs og kammertónlistar, má þar auk Anne Sofie von Otter sérstaklega nefna Nils-Erik Sparf, fiðluleikara og Mats Liström, sellóleikara.
Viðburðahaldari
Harpa
Miðaverð er sem hér segir
A
12.990 kr.
B
9.990 kr.
Gull
14.990 kr.
Dagskrá
fimmtudagur 10. desember - 19:30
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu