Heiðurstónleikar, Kántrítónlist, Rokk og popp, Tónlist

Verð
6.990 - 16.990 kr
Næsti viðburður
föstudagur 12. febrúar - 20:00
Salur
Eldborg
A Country Night in Nashville snýr aftur í Hörpu í kjölfar uppseldra tónleika árið 2025 í Reykjavik, Þýskalandi og Royal Albert Hall í London, auk tónleikaferðar um Bretland sem sló öll aðsóknarmet.
Ein heitasta kántrý hljómsveit heims í dag Dominic Halpin and the Hurricanes flytur mörg af frægustu lögum stærstu kántrí stjarnanna, bæði lifandi og liðinna.
Dominic Halpin er einstaklega sjarmerandi söngvari og mætir í Hörpu ásamt hæfileikaríkri hljómsveit sinni sem munu endurskapa honky-tonk stemninguna í Nashville og fanga orkuna og andrúmsloftið í heimabæ kántrítónlistarinnar.
Búið ykkur undir tónlistarferðalag sem spannar nokkra áratugi og hjartnæman flutning laga flytjenda eins og Johnny Cash, Dolly Parton, Willie Nelson, Patsy Cline, The Chicks, Shania Twain og Lady A, svo nokkrir séu nefndir.
Þessi ótrúlega veisla af kántrítónlist er mögnuð upplifun sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
Viðburðahaldari
Jamboree Entertainment
Miðaverð er sem hér segir
A
15.990 kr.
B
12.990 kr.
C
10.990 kr.
D
8.990 kr.
X
16.990 kr.
E
6.990 kr.
Dagskrá
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Hleður
Næstu viðburðir í Hörpu