Kammertónlist, Klassík, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
4.500 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 9. ágúst - 13:00
Salur
Norðurljós
Miller-Porfiris Duo
Hér mætast tvö íslensk, fjögur bandarísk og eitt skoskt tónskáld ásamt einum íslenskum myndlistarmanni og sameina jarðfræði þriggja landa. Þjóðgarðablandan á rætur sínar að rekja til málverka Arngunnar Ýrar úr myndverkaröð hennar um þjóðgarða, þar sem hún fléttar saman myndum af þekktum fjalllendum Íslands og Bandaríkjanna.
Tónskáldið Veronique Vaka hafði samband við víólu- og fiðludúóið Miller-Porfiris með hugmynd að verki innblásnu af þessum málverkum. Út frá þeirri hugmynd varð til verkefni þar sem sex ný verk voru pöntuð í kringum þemað um að sameina og flétta saman ólík landsvæði og þjóðgarða. Verkin hljóma nú í fyrsta sinn á Íslandi, en heimsfrumflutningur þeirra fór fram síðasta sumar á Grand Teton Music Festival í Bandaríkjunum, í hjarta Grand Teton þjóðgarðsins.
Tónlistinni fylgir sjónræn upplifun þar sem verk Arngunnar Ýrar er varpað upp á skjá ásamt myndum frá þeim stöðum sem verkin sækja innblástur sinn til. Áhorfendur fá að sjá eldgos, hreyfingu jarðfleka, kísilþörunga sem umbreytast í stuðlaberg og önnur náttúrufyrirbæri sem endurspegla tengsl landslaga staðanna. Saman mynda tónlist og myndlist ferðalag um náttúruöfl, landmótun og sameiginlegt ímyndunarafl þriggja ólíkra landa.
Efnisskrá:
Veronique Vaka: Vatn
Hildigunnur Rúnarsdóttir: Snæfellsjökulsþjóðgarður
Errollyn Wallen: Tree
Anne Guzzo: Water Suite
Elena Ruehr: Evening On Jenny Lake
Ken Steen: Smámyndir: Tungl yfir Laugarvatni, Sprungudalur, Þúfa, Óvægið sólarljós
Stephen Gryc: Gazing
Flytjendur:
Miller-Porfiris Duo (MP2) hefur glatt áheyrendur með strengjaleik síðan árið 2005. Tvíeykið Rita Porfiris, víóluleikari, og Anton Miller, fiðluleikari, hefur haldið námskeið og meistaranámskeið á hátíðum og við stofnanir víðs vegar um Bandaríkin, Ísland, Evrópu, Mið-Austurlönd og Asíu. Á síðustu misserum hefur tvíeykið farið í tónleikaferðir um Bandaríkin, Ísland, Taívan og Ísrael, með lofsverðum flutningum á meðal annars Spitalfields-hátíðinni í London, Chamber Music of Little Rock, Chamber Music Pittsburgh, Tel Aviv Museum og Kammermúsíkklúbbi Íslands. Tónleikaröðin þeirra „MP2 on the Silver Screen“ hefur vakið athygli fyrir að kynna fyrir áheyrendum heillandi samruna þögulla kvikmynda og lifandi tónlistar.
Lengd: 60 mínútur, án hlés.
Almennt verð: 4.500kr
Verð fyrir nema, meðlimi Íslenska Schumannfélagsins og tekjulága: 2.500kr í miðasölu Hörpu.
–
Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com og í hátíðartímaritinu Seiglazine.
Harpa er sérstakur styrktaraðili Seiglu 2026. Tónlistarhátíðin Seigla er einnig styrkt af Tónlistarsjóði, Styrktarsjóði SUT og Ruthar Hermanns, Ýli, Menningarsjóði FÍH, Listaháskóla Íslands og Hollvinum Seiglu.
Viðburðahaldari
Seigla
Miðaverð er sem hér segir
A
4.500 kr.
A
4.500 kr.
Dagskrá
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

Næstu viðburðir í Hörpu