Fjölskyldan, Klassík, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Event poster

HIMA 2026 - Loka­tón­leikar yngri deildar

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

2.900 kr

Næsti viðburður

sunnudagur 21. júní - 11:00

Salur

Eldborg

Lokatónleikar Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar HIMA sem haldin hefur verið árlega síðan 2012. HIMA skiptist í þrjár deildir: Yngri deild, Miðdeild og Eldri deild. Þátttakendur HIMA fá einkatíma, sækja masterklassa, fá leiðsögn í kammertónlist og spila á uppskerutónleikum í Hörpu. Um það bil fjórðungur nemenda og nokkrir gestakennarar koma erlendis frá, en allir kennarar eru hljóðfæraleikarar og kennarar í fremsta flokki. Í HIMA kynnast íslenskir hljóðfæranemar fleiri strengjanemendum á sama reki, bæði íslenskum og erlendum, fá leiðsögn hjá framúrskarandi innlendum og erlendum kennurum og flytja tónlist í einu af bestu tónleikahúsum Evrópu.

Lokatónleikarnir í Hörpu eru sannkölluð hátíð þar sem strengjaleikarar framtíðarinnar leika metnaðarfulla efnisskrá bæði sem einleikarar, í kammerhópum og strengjasveitum.

Tónleikarnir eru rúm klukkustund að lengd, án hlés.

HIMA nýtur stuðnings frá Hafnarfjarðarbæ, Ýli, Barnamenningarsjóði og Rótarýklúbb Reykjavíkur.

Viðburðahaldari

HIMA

Miðaverð er sem hér segir

A

2.900 kr.

Dagskrá

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

a large empty auditorium with red seats and a stage .