Fjölskyldudagskrá Hörpu, Ókeypis viðburður, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
0 kr
Næsti viðburður
laugardagur 20. febrúar - 14:00
Salur
Flói
Pínulitli tónsprotinn er sniðinn að allra yngstu áheyrendum Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Tónleikarnir eru um hálftímalangir og haldnir í Flóa, opnu og fallegu umhverfi í Hörpu. Hljómsveitin leikur fallega tónlist og skemmtileg lög sem margir þekkja. Kynnir er enginn annar en Bolli Könnuson Le Stell og Maxímús Músíkús kíkir að sjálfsögðu í heimsókn. Áhersla er lögð á létt og vinalegt andrúmsloft og nánd barnanna við hljómsveitina. Gott er að koma með púða fyrir þau minnstu til að sitja á. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
Hljómsveitarstjóri
Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir
Kynnir
Níels Thibaud Girerd / Bolli Könnuson Le Stell
Viðburðahaldari
Dægurflugan
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
laugardagur 20. febrúar - 14:00
laugardagur 20. febrúar - 15:00
Flói er glæsilegt opið rými á fyrstu hæð sem hentar vel fyrir móttökur, veisluhöld, markaði eða sem sýningarsvæði. Fallegt útsýni er úr Flóa yfir Esjuna, höfnina og miðborgina.

Næstu viðburðir í Hörpu