Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
4.100 - 12.700 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 18. mars - 19:30
Salur
Eldborg
Það er ekki á hverjum degi að ráðist er í flutning á þrekvirki J. S. Bachs, Mattheusarpassíunni, en árið 2027 verða 300 ár liðin frá frumflutningi hennar. Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur nú þetta stórvirki tónlistarsögunnar ásamt fjölda einsöngvara og kóra undir stjórn Benedikts Kristjánssonar. Benedikt er okkar fremsti túlkandi á söngtónlist Bachs og eftirsóttur sem slíkur um gervalla Evrópu. Hér leiðir hann hljómsveitina auk þess að syngja hlutverk guðspjallamannsins. Með Benedikt koma fram margir af okkar fremstu söngvurum ásamt einvalaliði erlendra einsöngvara. Þrír kórar taka þátt í flutningi þessa mikilfenglega verks, sem tekur um þrjár klukkustundir í flutningi. Þetta eru tónleikar sem enginn tónlistarunnandi getur látið framhjá sér fara.
Hljómsveitarstjóri og einsöngvari
Benedikt Kristjánsson
Einsöngvarar
Anton Haupt
Herdís Anna Jónasdóttir
Oddur Arnþór Jónsson
Reginald Mobley
Sveinn Dúa Hjörleifsson
Kórar
Kór Langholtskirkju
Mótettukórinn
Skólakór Kársnesskóla
Efnisskrá
Johann Sebastian Bach Mattheusarpassían
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir
A
10.700 kr.
B
8.700 kr.
C
6.100 kr.
D
4.100 kr.
X
12.700 kr.
Dagskrá
fimmtudagur 18. mars - 19:30
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Næstu viðburðir í Hörpu