Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
3.100 - 11.500 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 10. júní - 19:30
Salur
Eldborg
Tan Dun er eitt af þekktustu tónskáldum samtímans og er hvað þekktastur fyrir að hafa náð að tengja saman kínverska og vestræna tónlistarhefð á listilegan máta. Hann er þekktur fyrir sinfónísk verk sín jafnt sem kvikmyndatónlist og hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir verk sín, þ. á m., Grammy-, BAFTA- og Óskarsverðlaunin fyrir tónlist sína við kvikmyndina Crouching Tiger, Hidden Dragon. Hann er góðvildarsendiherra UNESCO á sviði vatnaverndar, enda er vatn og önnur frumefni afar algengt yrkisefni í verkum hans. Leiðari pákudeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Soraya Nayyar, mun leika hinn einstaka vatns-konsert eftir Tan Dun, þar sem vatnið er oft og tíðum aðal einleikshljóðfærið. Á tónleikunum verða einnig flutt tvö verk eftir Stravinskíj í fyrsta sinn á Íslandi: Æskuverkið Flugeldar, sem vakti verðskuldaða athygli á tónskáldinu unga unga þegar verkið var frumflutt og tónaljóðið Söngur næturgalans, sem Stravinskíj vann upp úr óperu sinni Næturgalanum frá 1914. Andi Vorblótsins svífur yfir vötnunum í þessu litskrúðuga og fjörmikla tónaljóði sem segir söguna af því hvernig söngur næturgalans bræddi hjarta keisarans í Kína.
Hljómsveitarstjóri
Tan Dun
Einleikari
Soraya Nayyar
Efnisskrá
Ígor Stravinskíj Feu D’artifice / Flugeldar
Tan Dun Water Concerto, Konsert fyrir vatnsslagverk og hljómsveit
Ígor Stravinskíj Le Chant du Rossignol / Söngur næturgalans
Tan Dun Passacaglia: Secrets of Winds and Birds
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir
A
9.300 kr.
B
7.100 kr.
C
5.100 kr.
D
3.100 kr.
X
11.500 kr.
Dagskrá
fimmtudagur 10. júní - 19:30
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Næstu viðburðir í Hörpu