Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
3.100 - 11.500 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 27. maí - 19:30
Salur
Eldborg
Barbara Hannigan, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Hugi Guðmundsson, staðartónskáld hljómsveitarinnar, taka hér höndum saman og frumflytja nýtt tónverk, Freyju, sem samið er í nánu samstarfi þeirra tveggja og kanadíska rithöfundarins Julie Salverson sem ritar texta verksins. Freyja sveiflast milli hins hversdagslega og goðsagnakennda. Innblástur verksins er hið merka lífshlaup Margrétar Benedictsson (1866–1956) sem fluttist 21 árs úr örbirgð íslenskra heimahaga til Kanada, þar sem hún varð síðar mikill baráttukona fyrir mannréttindum. Hún stofnaði m.a. tímaritið Freyju og var einstakt afl í baráttunni fyrir kosningarétti kvenna í Kanada. Verkið kannar einnig samþættingu þeirra tveggja hlutverka sem Hannigan fer með í verkinu; sem hljómsveitarstjóri og einsöngvari.
Tónleikunum lýkur svo með hinni kraftmiklu og líflegu sinfóníu nr. 2 eftir Ludwig van Beethoven. Þrátt fyrir að vitneskjan um óumflýjanlegt heyrnarleysi hafi litað líf hans dökkum litum um þetta leyti er sinfónían engu að síður full af gáska og stríðni. Hún er eitt stórt bros sem fylgir okkur vonandi út í milt vorkvöldið.
Hljómsveitarstjóri og einsöngvari
Barbara Hannigan
Efnisskrá
Hugi Guðmundsson Freyja, frumflutningur
Ludwig Van Beethoven Sinfónía nr. 2
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir
A
9.300 kr.
B
7.100 kr.
C
5.100 kr.
D
3.100 kr.
X
11.500 kr.
Dagskrá
fimmtudagur 27. maí - 19:30
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Næstu viðburðir í Hörpu