Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
3.100 - 11.500 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 29. apríl - 19:30
Salur
Eldborg
Elisabeth Leonskaja hefur átt glæstan feril sem píanóleikari í um 60 ár -og þessi hógværa drottning hljóðfærisins heillar enn áheyrendur með litskrúðugum leik sínum og innblásinni túlkun. Á þessum tónleikunum Sinfóníuhljómsveitar Íslands leikur hún hinn gullfallega píanókonsert nr. 24 í c-moll eftir W.A. Mozart, sem er einn af hans þekktustu og mest leiknu píanókonsertum. Tomáš Hanus, aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leiðir hljómsveitina einnig í gegnum hið stórfenglega Má vlast eftir samlanda sinn, tékkneska tónskáldið Bedřich Smetana. Tónverkið hefur aldrei áður verið flutt hér í heild sinni en það er samsett úr sex sjálfstæðum tónaljóðum sem öll tengjast náttúru og sögu Bæheims. Annað tónaljóðið, Moldá, er langþekktasti hluti verksins og hefur margoft verið leikið af Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Hljómsveitarstjóri
Tomáš Hanus
Einleikari
Elisabeth Leonskaja -
Efnisskrá
Wolfgang Amadeus Mozart Píanókonsert nr. 24
Bedřich Smetana Má vlast / Föðurland mitt
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir
A
9.300 kr.
B
7.100 kr.
C
5.100 kr.
D
3.100 kr.
X
11.500 kr.
Dagskrá
fimmtudagur 29. apríl - 19:30
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Næstu viðburðir í Hörpu