Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Event poster

Alina Ibragimova & Beet­hoven 9 - Sinfón­íu­hljóm­sveit Íslands

Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00
Miðasala hefst 8. júní - kl. 10:00

Verð

3.100 - 11.500 kr

Næsti viðburður

fimmtudagur 8. október - 19:30

Salur

Eldborg

Edward Gardner telst tvímælalaust til þekktustu hljómsveitarstjóra heims um þessar mundir. Hann gegnir starfi aðalstjórnanda Fílharmóníusveitar Lundúna og er tónlistarstjóri við Norsku óperuna og ballettinn auk þess sem hann er eftirsóttur gestastjórnandi hjá hljómsveitum og stærstu óperuhúsum heims. Fiðluleikarinn Alina Ibragimova hefur skipað sér á bekk með fremstu fiðluleikurum sinnar kynslóðar og kemur reglulega fram sem einleikari með hljómsveitum víða um heim en einnig sem flytjandi kammertónlistar. Hér færa þessir frábæru listamenn okkur hinn gullfallega fiðlukonsert nr. 1 eftir Sergej Prokofíev. Konsertinn ber höfundi sínum fagurt vitni með lýrískum seiðandi laglínum í bland við kraftmikil átök einleiksfiðlunnar við hljómsveitina. Níunda sinfónía Beethovens verður engu að síður þungamiðja þessara tónleika í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands með fulltingi einsöngvara og kóra í fremstu röð. Sinfónían er stórkostlegt ákall til mennsku og bræðralags, boðskapur sem á jafn brýnt erindi við nútímann og hún hafði í byrjun 19. Aldar.

Hljómsveitarstjóri


Edward Gardner 

Einleikari
Alina Ibragimova

Einsöngvarar
Harpa Ósk Björnsdóttir
Hanna Dóra Sturludóttir
Stuart Skelton
Andri Björn Róbertsson

Kórar
Söngsveitin Fílharmónía
Kór Langholtskirkju

Efnisskrá
Sergej Prokofíev Fiðlukonsert nr. 1
Ludwig Van Beethoven Sinfónía nr. 9


Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir

A

9.300 kr.

B

7.100 kr.

C

5.100 kr.

D

3.100 kr.

X

11.500 kr.

Dagskrá

fimmtudagur 8. október - 19:30

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

a large empty auditorium with red seats and a stage .