Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Verð
3.100 - 11.500 kr
Næsti viðburður
fimmtudagur 11. mars - 19:30
Salur
Eldborg
Ásta Dóra Finnsdóttir er ein af okkar efnilegustu píanóleikurum og stundar nú framhaldsnám við einn virtasta tónlistarskóla heims, Curtis Institute of Music í Bandaríkjunum. Þetta er í fyrsta sinn sem Ásta Dóra kemur fram sem einleikari á áskriftartónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún leikur hér hinn síunga píanókonsert Griegs sem geislar af lífi og krafti. Konsertinn sló í gegn strax við frumflutning og hefur síðan verið eitt vinsælasta tónverk Griegs.
Á síðari hluta tónleikanna verður Íslandsfrumflutningur á nýju stórvirki eftir Önnu Þorvaldsdóttur, en jafnan er beðið eftir nýjum verkum frá Önnu með mikilli eftirvæntingu um allan heim. Verkið var pantað af Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveitinni í Boston, Gewandhaus-hljómsveitinni í Leipzig og Fílharmóníuhljómsveitinni í Helsinki. Hin norska Tabita Berglund, stjórnandi tónleikanna, er á hraðri uppleið í heimi hljómsveitarstjóra og tekur við stöðu aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar í Bergen haustið 2026.
Hljómsveitarstjóri
Tabita Berglund
Einleikari
Ásta Dóra Finnsdóttir
Efnisskrá
Carl Nielsen Helíos forleikur
Edvard Grieg Píanókonsert í a-moll
Anna Þorvaldsdóttir Shadows of Solace frumflutningur á Íslandi
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir
A
9.300 kr.
B
7.100 kr.
C
5.100 kr.
D
3.100 kr.
X
11.500 kr.
Dagskrá
fimmtudagur 11. mars - 19:30
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.

Næstu viðburðir í Hörpu