Jazz og blús, Rokk og popp, Tónlist

Verð
0 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 12. apríl - 13:00
Salur
Flói
Árlegt Stórsveitamaraþon. Að vanda
býður Stórsveit Reykjavíkur til sín öllum stórsveitum landsins, ungum sem
öldnum, nemendum sem atvinnumönnum og leikur hver sveit í u.þ.b. hálfa
klukkustund.
Dagskrá verður fjölbreytt og skemmtileg og gera má ráð
fyrir að flytjendur verði um 150.
Maraþonið, sem nú er
haldið í 30. sinn, er hluti af uppeldis- og kynningarstefnu Stórsveitar
Reykjavíkur.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir,
en áhorfendum er frjálst að koma og fara á meðan viðburðurinn stendur yfir.
Viðburðahaldari
Stórsveit Reykjavíkur
Þessi viðburður er ókeypis
Dagskrá
sunnudagur 12. apríl - 13:00
Næstu viðburðir í Hörpu
Flói er glæsilegt opið rými á fyrstu hæð sem hentar vel fyrir móttökur, veisluhöld, markaði eða sem sýningarsvæði. Fallegt útsýni er úr Flóa yfir Esjuna, höfnina og miðborgina.
