Sígild og samtímatónlist, Tónleikar, Tónlist

Event poster

Öll veröldin er leik­svið

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

6.900 kr

Næsti viðburður

miðvikudagur 11. mars - 20:00

Salur

Norðurljós

Tónleikarnir Öll veröldin er leiksvið er helguð magnaðri leikhústónlist Hjálmars H. Ragnarssonar. Flutt verður tónlist úr sýningunum Yerma (1987), Pétur Gautur (1991), Himnaríki og helvíti (2018) og Cyrano de Bergerac (2001) sem settar voru upp í Þjóðleikhúsinu.

Flytjendur eru Herdís Anna Jónasdóttir, sópran, Hallveig Rúnarsdóttir, sópran, Hildigunnur Einarsdóttir, mezzósópran, Fjölnir Ólafsson, baríton, Pétur Grétarsson, slagverksleikari, Hrönn Þráinsdóttir, píanóleikari, kammerkórinn Cantoque Ensemble og Rússíbanarnir, sem koma aftur saman fyrir þetta tilefni.

Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum, miðvikudagskvöldið 11. mars.

Hjálmar H. Ragnarsson er eitt afkastamesta og dáðasta tónskáld íslensks samtíma.

Þar skipar leikhústónlist afar mikilvægan sess. Hér hljómar tónlist úr nokkrum leiksýningum sem Hjálmar samdi tónlistina við. Þar er viðamesti hlutinn kraftmikil og ómótstæðileg tónlist hans úr uppfærslu Þjóðleikhússins á Yermu, verki Federico Garcia Lorca í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur en sýningin sló eftirminnilega í gegn þegar hún var sett upp 1987.

Einnig verður tónlist úr sýningunum Himnaríki og helvíti, byggð á skáldverki Jóns Kalmans Stefánssonar, sett upp í Þjóðleikhúsinu árið 2018 í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar og Pétri Gaut, uppfærslu Þjóðleikhússins frá árinu 1991 á leikriti Henrik Ibsens í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur.

Að lokum má nefna tónlist úr leikritinu Cyrano de Bergerac þar sem hljómsveitin Rússíbanarnir munu koma aftur saman, en sú uppfærsla sló ekki síður í gegn, frumsýnd í Þjóðleikhúsinu árið 2001.

Auk leikhústónlistarinnar verður flutt hið magnaða Ástarljóð mitt sem Hjálmar samdi fyrir sópran og píanó í tilefni fertugsafmælis eiginkonu sinnar Ásu Richardsdóttur. Ljóðið er eftir Else Lasker Schüler í þýðingu Hannesar Péturssonar.

Að tónleikunum koma ýmsir listamenn í fremstu röð.

Sópransöngkonunan Herdís Anna Jónasdóttir hefur vakið verðskuldaða athygli frá því hún kom fyrst fram á sjónarsviðið en hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins árið 2025. Hallveig Rúnarsdóttir hefur hlotið sömu verðlaun í tvígang en hún hefur sungið sig inn í hjörtu landsmanna frá því hún kom heim úr námi árið 2001. Hildigunni Einarsdóttir er ein eftirsóttasta mezzópransöngkona landsins og hlaut einmitt Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngkona ársins árið 2023. Fjölnir Ólafsson baritónsöngvari hefur starfað með fjöldamörgum tónlistarhópum hérlendis og hlaut verðlaunin Bjartasta vonin á Tónlistarverðlaununum árið 2014.

Pétur Grétarsson hefur verið farsæll tónlistarmaður og slagverksleikari um langt skeið og átti stóran þátt í sýningunni Yerma. Hrönn Þráinsdóttir hefur fyrir löngu sannað sig sem einn eftirsóttasti píanóleikari og meðleikari söngvara á Íslandi. Cantoque Ensemble er tvímælalaust einn af fremstu kórum landsins og síðast en ekki síst má nefna hina sprellfjörugu Rússíbana sem koma saman á ný eftir langt leikhlé.

Að tónleikunum koma einnig Þórhildur Þorleifsdóttir sem listrænn ráðgjafi og Páll Ragnarsson, ljósahönnuður.

Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við Hörpu og með styrk úr Styrktarsjóði Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns.

Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir

A

6.900 kr.

Dagskrá

Norðurljós

Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

a large auditorium filled with rows of chairs and purple lights .

Næstu viðburðir í Hörpu