Jazz og blús, Tónlist

Verð
4.900 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 21. janúar - 20:00
Salur
Björtuloft
Sölvi Kolbeinsson, saxófónn
Hilmar Jensson, gítar
Magnús Trygvason Eliassen, trommur
Tríó saxófónleikarans Sölva Kolbeinssonar leikur efni af plötunni Collage sem kom út hjá Reykjavík Record Shop í nóvember 2025. Collage er fyrsta hljómplata Sölva eingöngu með eigin tónsmíðum. Þetta er tilraunakenndur djass, innblásinn af dvöl hans í Berlín og Kaupmannahöfn ásamt því að flytja aftur heim til Íslands. Lögin eru ólík og tákna mismunandi augnablik, myndir, hver og ein með eigin stemningu og sterk karaktereinkenni. Saman skapa myndirnar heild og þaðan kemur titill plötunnar. Tríóið varð til út frá dúói Sölva og Magnúsar en þeir voru paraðir saman við Hilmar á Djasshátíð 2020 og spiluðu þar stórskemmtilega tónleika. Til að byrja með spiluðu þeir sín uppáhalds lög eftir aðra en fókusinn færðist fljótlega yfir á tónsmíðar Sölva. Eftir að spila fleiri tónleika og prófa allskonar héldu þeir í hljóðver desember 2024. Nú er komin plata og meira á leiðinni!
Viðburðahaldari
Múlinn Jazzklúbbur
Miðaverð er sem hér segir
A
4.900 kr.
Dagskrá
Björtuloft eru glæsileg umgjörð fyrir veislur, móttökur, einkasamkvæmi og fundi. Salurinn er á tveimur hæðum með stórbrotnu útsýni yfir borgina.

Næstu viðburðir í Hörpu