Bransadagurinn 2026Hljóð-, ljósa- og myndlausnir, sviðstækni, kvikmynda- og sjónvarpsgerð
Bransadagurinn 2026 verður haldinn í þriðja sinn í Hörpu þriðjudaginn 13. janúar.
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með innlendum og erlendum sérfræðingum sem eiga erindi við fagfólk í lýsinga-, hljóð- og myndlausnum ásamt sviðstækni, kvikmyndagerð og sjónvarpsframleiðslu.
Bransadagurinn er einstakt tækifæri fyrir tæknifólk til að hittast, deila fróðleik og fræðast um nýja tækni.
Almennt miðaverð er 12.000kr.Innifalið í miðaverði er aðgangur að fyrirlestrum og vörusýningu frá samstarfsaðilum auk þess sem boðið verður upp á hádegismat og svo hressingu að dagskrá lokinni.
Athugið að takmarkað magn miða er í boði.
Skerpa - Félag tæknifólks og Rafiðnarsamband Íslands niðurgreiða miða fyrir félagsfólk og kostar þá miðinn aðeins 4.000 kr. Þessi sérkjör gilda til áramóta, afsláttarhlekkur verður sendur í tölvupósti á félagsfólk.
Auk þess gefst vinnustöðum tækifæri til magnkaupa á miðum fyrir starfsfólk sitt á sérkjörum, þar eru lágmarkskaup 10 miðar og hægt að hafa samband við siggarosa@bransadagurinn.is
Nánari dagskrá verður kynnt fljótlega, fylgstu vel með á 
bransadagurinn.is