Rising Stars, Tónleikar, Tónlist
Verð
5.000 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 10. maí - 20:00
Salur
Norðurljós
Lafði Lazarus er yfirskrift lokatónleika Rising Stars tónlistarhátíðarinnar í Hörpu þar sem fram koma sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir og píanóleikarinn Kunal Lahiry.
Ljóð Sylviu Plath, Lady Lazarus, sem þýska tónskáldið Aribert Reimann samdi magnað einsöngsverk sitt við árið 1992, myndar þráð í gegnum efnisskrána sem teygir sig yfir margar aldir og hverfist um stef á borð við frelsi og viðnám gegn kúgun. Á meðal tónverka er Íslandsfrumflutningur á verkinu Náðarstef sem María Huld Markan Sigfúsdóttir samdi sérstaklega fyrir Álfheiði og Kunal, við ljóð þriggja skálda úr ólíkum áttum.
Undanfarna mánuði hafa Álfheiður Erla og Kunal komið fram í mörgum af virtustu tónleikahúsum Evrópu svo sem í Elfphilharmonie í Hamborg, Concertgebouw í Amsterdam og Parísarfílharmóníunni. Nú er röðin komin að Hörpu.
EFNISSKRÁ
Henry Purcell (1559 - 1695) / John Dryden
Music for a While (úr Ödupusi, konungi Þebu), Z 583/2 (úts. W. Bergmann / M. Tippett)
Aribert Reimann (1936 - 2024) / Sylvia Plath
I Have Done it Again (úr Lady Lazarus, 1999)
Franz Schubert (1727 - 1810) / Josephine von Munk-Holzmeister
Blondel zu Marien, D 626
Carol Anne McGowan (1983) /
Mary Elizabeth Frye
Do Not Stand by My Grave and Weep
Aribert Reimann / Sylvia Plath
The Nose, the Eye Pits, the Full Set of Teeth? (úr Lady Lazarus)
Benjamin Britten (1913 - 1976) / Arthur Rimbaud
Les illuminations op. 18: VI. Interlude
Les illuminations op. 18: VII.
Being Beauteous
María Huld Markan Sigfúsdóttir (1980)
Náðarstef (2025)
I. Nóttin er mér náðardjúp (Fríða Ísberg)
II. Síðasta ljóðið (Halina Poswiatowska / ísl. þýðing: Maó Alheimsdóttir)
III. Fljúgandi ljóð (Mosab Abu Toha, ísl. þýðing: Móheiður Hlíf Geirslaugsdóttir)
(pantað af Hörpu, Philharmonie Luxemburg, ECHO)
Aribert Reimann (1936 - 2024)
The First Time it Happened I Was Ten (úr Lady Lazarus)
Christian Jost (1963) / Franz Kafka
Der explodierende Kopf
Luciano Berio (1925 - 2003)
Wasserklavier (úr 6 Encores)
Shawn E. Okpebholo (1981)
Oh, Freedom (úr Songs in Flight)
Aribert Reimann (1936 - 2024)
There Is a Charge (úr Lady Lazarus)
Henry Purcell (1559 - 1695) / Ókunnur höfundur
By beauteous softness (úr Now Does the Glorious Day Appear, Z 332 'Birthday Ode for Queen Mary II')
-
Rising Stars er verkefni á vegum ECHO, Samtaka evrópskra tónleikahúsa. Rising Stars-verkefnið er margþætt; það veitir ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að koma fram í frábærum tónlistarhúsum víðs vegar um Evrópu og veitir jafnframt ferskum straumum inn í tónlistarlíf og dagskrá viðkomandi tónlistarhúsa. Verkefnið styður við nýsköpun en þeir hópar og einstaklingar sem valdir eru til þátttöku í Rising Stars panta tónsmíð sem er flutt er á öllum tónleikum viðkomandi. Samhliða tónleikahaldi tekur unga tónlistarfólkið þátt í samfélagslegum tónlistarverkefnum sem lúta að miðlun, kennslu og/eða viðburðahaldi, gjarnan utan hins hefðbundna tónleikasalar en verkefnin eru ákveðin í samstarfi við viðkomandi tónlistarhús.
Um 110 tónleikar fara árlega fram á vegum Rising Stars. Á meðal tónlistarfólks sem komið hefur fram undir merkjum Rising Stars eru fiðluleikararnir Patricia Kopatchinskaja,
Renaud Capuçon
og Janine Jansen, píanóleikararnir Khatia Buniatishvili og Igor Levit, sellóleikarinn Kian Soltani og strengjakvartettarnir Quarteto Casals og Belcea Quartet.
-
ECHO, samtök evrópskra tónleikahúsa, voru stofnuð árið 1991 en í samtökunum eru nú 23 tónleikahús í 14 Evrópulöndum. Aðildarhús ECHO styðja hvert annað með því að deila reynslu og þekkingu og koma af stað metnaðarfullum, alþjóðlegum samstarfsverkefnum. Lögð er rík áhersla á tengsl við listafólk, áhorfendur og samfélagið sem og frumsköpun og stuðning við ungt listafólk.
-
RISING STARS TÓNLISTARHÁTÍÐIN Í HÖRPU
9. - 10. maí 2026 í Norðurljósum
Laugardagur, 9. maí kl. 17
Maat saxófónkvartettinn: Blackbird
Laugardagur, 9. maí kl. 20
Giorgi Gigashvili, píanó
Sunnudagur, 10. maí kl. 17
Valérie Fritz, selló: Learn to unlearn
Sunnudagur, 10. maí kl. 20
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, sópran og Kunal Lahiry, píanó: Lady Lazarus
Viðburðahaldari
Harpa
Miðaverð er sem hér segir
A
5.000 kr.
Dagskrá
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.
Næstu viðburðir í Norðurljósum