Sígild og samtímatónlist, Sígildir sunnudagar, Tónleikar

Event poster

Tríó Sírajón á Sígildum sunnu­dögum: Ýr og aðrar áttir

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

4.500 kr

Næsti viðburður

sunnudagur 22. febrúar - 16:00

Salur

Norðurljós

Tríó Sírajón var stofnað á vordögum árið 2010 og hefur haldið fjölmarga tónleika víðsvegar um landið sem og erlendis. Tríóið efnir gjarnan til samstarfs með öðru tónlistarfólki og hefur pantað ný verk frá íslenskum tónskáldum og frumflutt. Nafn tríósins vekur jafnan forvitni en það er sótt til ættföður Reykjahlíðarættarinnar í Mývatnssveit, Síra (séra) Jóns Þorsteinssonar, sem er forfaðir hljóðfæraleikaranna þriggja.

Efnisskrá tónleikanna
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir: Nokkur ljóð um draum (frumfl.)
Francis Poulenc: L´invitation au château - Boðið í kastalanum (leikhústónlist)


Hjálmar H. Ragnarsson: Leiftur II, ómbrot úr leikhúsinu

Hlé

Peter Schickele: Serenade for Three (frumfl. á Íslandi)
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir: Nokkur ljóð um draum (endurflutt)

Hugleiðing um tónleikana
Tríósamsetningin fiðla, klarínett og píanó er ekki mjög algeng og má segja að sé tilbrigði við hið klassíska píanótríó þar sem klarínettið kemur í stað sellós eða víólu og gefur nýja möguleika til tjáningar og litbrigða. Rósin í hnappagatinu á þessum tónleikum er splunkunýtt verk eftir Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur en ljós hennar skín skært meðal ungra tónskálda á Íslandi um þessar mundir. Verkið er innblásið af ljóðum eftir Þorstein frá Hamri. Peter Schickele átti ættir að rekja til Elsass héraðs í Frakklandi/Þýskalandi en foreldrar hans fluttu til Bandaríkjanna þar sem hann fæddist. Hann átti farsælan feril sem fagottleikari og tónskáld, og ekki síst þekktur fyrir að skapa persónuna kómísku P.D.Q. Bach, síðasta barn og hinn gleymda son meistara J.S. Bachs. Serenaða hans er þó á öllu hefðbundnari en ljúfum og skemmtilegum nótum. Poulenc og Hjálmar hnýta svo endahnútinn á prógrammið með fyndinni fegurð og dásamlegum melódíum ættuðum úr leikhúsinu.

Tríó Sírajón
Laufey Sigurðardóttir fiðla
Einar Jóhannesson klarínett
Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanó

Laufey Sigurðardóttir lærði á fiðlu í Tónlistarskólanum í Reykjavík og í Tónlistarháskólanum í Boston. Hún hefur verið fastráðinn fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands um árabil. Hún hefur jafnframt oft komið fram sem einleikari og frumflutt verk íslenskra tónskálda sem hafa skrifað fyrir hana sértaklega. Laufey hefur verið ötul við flutning kammertónlistar á Íslandi og á meginlandi Evrópu sem og vestan hafs. Hún er listrænn stjórnandi tónlistarviðburðanna „Músík í Mývatnssveit“ og „Afmælisdagur Mozarts“.

Einar Jóhannesson stundaði sitt klarínettnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og The Royal College of Music í London þar sem hann bjó og starfaði í rúman áratug. Hann var leiðandi klarínettleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands um áratuga skeið. Hann hefur unnið til margra verðlauna fyrir leik sinn og komið fram sem einleikari og meðleikari á fjölda tónleika um heim allan. Hann er stofnfélagi Blásarakvintetts Reykjavíkur og er einn sexmenninganna sem skipa miðaldasönghópinn Voces Thules.

Anna Áslaug Ragnarsdóttir er í fríðum hópi fjölmargra tónlistarmanna sem hóf tónlistarnám sitt á Ísafirði. Hún hélt svo til náms í The Royal College of Music í London og Accademia di santa Cecilia í Rómaborg. Hún hefur komið fram sem píanóleikari víða um Evrópu og Norður-Ameríku. Á Íslandi hefur hún oft leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands og haldið einleikstónleika, m.a. á vegum Myrkra músíkdaga, Norrænna músíkdaga, Tíbrár og tónlistarfélaganna í Reykjavík, Ísafirði og Akureyri.

Almennt miðaverð er 4500 kr. en eldri borgurum og námsmönnum býðst miðinn á hálfvirði í miðasölu Hörpu.

Viðburðahaldari

Tríó Sírajón

Miðaverð er sem hér segir

A

4.500 kr.

Dagskrá

Norðurljós

Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

a large auditorium filled with rows of chairs and purple lights .

Næstu viðburðir í Hörpu