Ókeypis viðburður, Sígild og samtímatónlist, Tónleikar, Tónlist

Event poster

Velkomin heim | Sandra Lind Þorsteins­dóttir, söng­kona

Verð

0 kr

Næsti viðburður

sunnudagur 20. júlí - 16:00

Salur

Hörpuhorn

Sandra Lind Þorsteinsdóttir er með meistaragráðu í söng frá Det Kongelige Danske Musikkonservatorium og B.A. í tónlist frá Listaháskóla Íslands. Hún hefur sungið einsöng í verkum svo sem Stabat Mater eftir Pergolesi, Requiem eftir Fauré, Det Hellige Land eftir Otto Malling, sem Pamina/Papagena í Töfraflautunni og í mörgum verkefnum með Flying Theatre. Hún er meðlimur í  ELECTRIO, tríói sem samanstendur af söng, gítar og raftónlist. 

Frá haustinu 2022 hefur Sandra stundað nám við Syddansk Musikkonservatorium.

Aðgangur er ókeypis og öll innilega velkomin.

Velkomin heim er tónleikaröð á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu.

Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir

A

0 kr.

Dagskrá

sunnudagur 20. júlí - 16:00

Hörpuhorn

Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

the inside of a large building with a lot of windows and chairs .

eventTranslations.event-showcase-hörpuhorn