Klassík, Sígild og samtímatónlist, Sinfóníuhljómsveit, Tónlist
Verð
2.990 - 5.900 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 21. september - 14:00
Salur
Eldborg
Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Hljómsveitarstjóri: Nathanaël Iselin
Efnisskrá
Pjotr Tsjajkovskíj Sinfónía nr. 4
Um hundrað ungmenni úr tónlistarskólum landsins taka þátt í hljómsveitarnámskeiði Sinfóníuhljómsveitar Íslands ár hvert undir leiðsögn atvinnuhljóðfæraleikara og hljómsveitarstjóra. Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands hélt sína fyrstu tónleika haustið 2009 í Háskólabíói og hefur síðan vakið verðskuldaða athygli en sveitin hlaut viðurkenninguna „Bjartasta vonin“ á Íslensku tónlistarverðlaununum 2016.
Hljómsveitin í ár er skipuð tónlistarnemum víðs vegar að á landinu sem valdir voru úr stórum hópi ungmenna sem leikið höfðu um sæti í sveitinni með prufuspili.
Ungsveitin hefur vakið athygli fyrir samstilltan flutning og einstaka túlkun og á þessu starfsári takast þau á við hina mögnuðu og dramatísku fjórðu sinfóníu Tsjajkovskíjs. Fjórða sinfónían hefur löngum verið talin „sjálfsævisöguleg“ og skipar hún sér þannig í hóp verka á borð við fimmtu sinfóníu Beethovens og Draumórasinfóníu Berliozar. Hljómsveitarstjóri að þessu sinni er Nathanaël Iselin, fyrrum staðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir
A
5.900 kr.
B
3.600 kr.
C
2.990 kr.
D
2.990 kr.
X
5.900 kr.
Dagskrá
sunnudagur 21. september - 14:00
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.
Næstu viðburðir í Eldborg