Rokk og popp, Tónlist
Verð
4.990 - 18.990 kr
Næsti viðburður
laugardagur 13. september - 21:00
Salur
Eldborg
Hljómsveitin Nýdönsk heldur sína árlega tónleika í Eldborg eftir viðburðaríkt ár.
Snemma árs sendi sveitin frá sér breiðskífuna, Í raunheimum, sem inniheldur lagið Fullkomið farartæki. Þetta er stærsti smellur sveitarinnar um langa hríð og var valið lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum, Rás 2 og Bylgjunni. Á þessum tónleikum mun kenna ýmissa grasa þar sem helstu smellirnir verða fluttir í bland við nýjustu lögin.
Hljómsveitina skipa þeir Björn Jörundur Friðbjörnsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Jón Ólafsson, Stefán Hjörleifsson og Ólafur Hólm. Þeim til aðstoðar verða þeir Guðmundur Pétursson, gítarleikari og Ingi Skúlason, bassaleikari.
Viðburðahaldari
Himnasending
Miðaverð er sem hér segir
A
14.990 kr.
B
11.990 kr.
C
8.990 kr.
D
6.990 kr.
E
4.990 kr.
VIP
18.990 kr.
X
16.990 kr.
Dagskrá
laugardagur 13. september - 21:00
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.
Næstu viðburðir í Eldborg