Kór, Ókeypis viðburður

Price
0 kr
Next event
Friday 1st May - 15:00
Venue
Hörpuhorn
Kammerkórinn Tónar kemur fram í Hörpuhorni, föstudaginn 1. maí kl. 15 - 15:30. Efnisskráin inniheldur fjölbreytta kórtónlist og vorsöngva svo sem eftir Edward Elgar, Hildigunni Rúnarsdóttur, Huga Guðmundsson, Magnús Ragnarsson, Tryggva M. Baldvinsson, Þorkel Sigurbjörnsson og fleiri. Stjórnandi kórsins er Agnes Jórunn Andrésdóttir. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð í Hörpuhorni sem Félag íslenskra kórstjóra gengst fyrir í samstarfi við Hörpu. Tónleikar fara fram 25. apríl, 1. og 3. maí.
--
Kammerkórinn Tónar var stofnaður haustið 2024 og samanstendur af reynslumiklum kórsöngvurum. Stjórnandi og stofnandi kórsins er Agnes Jórunn Andrésdóttir en hún hefur lokið kórstjóraprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar sem og stundað söng- og hljóðfæranám frá unga aldri. Markmið Tóna er að taka að sér fagmannlegan flutning á margskonar kórverkum, hvort sem það eru nýleg eða aldagömul verk. Fyrstu tónleikar kórsins samanstóðu af kórverkum sem skrifuð voru við sálma á íslensku. Einnig hefur Kammerkórinn Tónar flutt nokkur verk eftir Eric Whitacre á tónleikum með yfirskriftinni "Tónar & Whitacre" vorið 2025.
Promoter
Harpa
This event is free
What's on
Friday 1. May - 15:00
Hörpuhorn is an elegant open space, by the glass facade on the first floor, with a view of the city centre, the sea and the mountains. In Hörpuhorn, there are many possibilities for performing concerts for all musical genres.

Upcoming events in Harpa