19th February 2024
Ýlir tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk
úthlutar 20 styrkjum til tónleikahalds 2024
Úthlutað var úr Ýli, tónlistarsjóði Hörpu fyrir ungt fólk í janúar og fengu 20 verkefni styrk að þessu sinni. Fjöldi frambærilegra umsókna fyrir árið 2024 barst sjóðnum, en samtals voru til úthlutunar 4.600.000 kr.
Verkefni sem fengu úthlutað 150.000 kr. styrk.
- Þrjár kynslóðir tónskálda - Monteverdi, Cavalli, Strozzi
- Píanókvartettinn Negla á Sígildum sunnudögum
- Speglar
- STABAT MATER
- Klassa tónar á Unglist listahátíð ungs fólks 2024
- Franz Schubert - Malarastúlkan fagra
- IPSA DIXIT - kammerópera
- Andrew J. Yang – Einleikstónleikar
- Sígildir sunnudagar - Ástarsöngvaveisla
- Debussy, Árnadóttir, og Bartok
- Tónlist af köldum slóðum
- Draumur um Bronco - Útgáfutónleikar
Verkefni sem fengu úthlutað 200.000 kr. styrk.
- Söngur Fossbúans
Verkefni sem fengu úthlutað 300.000 kr. styrk.
- Stórir Káratónleikar
- Pierrot lunaire og „Kall“ á Óperudögum 2024
- Reykjavík Early Music Festival
- Velkomin Heim
- Óperudagar 2024
Verkefni sem fengu úthlutað 500.000 kr. styrk
- Upptakturinn 2024
Verkefni sem fengu úthlutað 600.000 kr. styrk
- Músíktilraunir 2024
Opnað verður fyrir umsóknir fyrir verkefni á árinu 2025 mánudaginn 2. september og er umsóknafrestur til og með mánudagsins 28. október 2024.
Á heimasíðu Ýlis er hægt að sjá yfirlit yfir styrkþega síðustu ára.