Börn og Fjölskyldan, Kór

Price
0 kr
Next event
Saturday 25th April - 14:30
Venue
Hörpuhorn
Kór Hörðuvallaskóla syngur í Hörpuhorni laugardaginn 25. apríl, kl. 14:30 - 15:00. Stjórnandi er Ása Valgerður Sigurðardóttir og með kórnum koma fram Bjarmi Hreinsson á píanó og Valgeir Daði Einarsson á gítar.
Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð í Hörpuhorni sem Félag íslenskra kórstjóra gengst fyrir í samstarfi við Hörpu. Tónleikar fara fram 25. apríl og 1. og 3. maí.
-
Kór Hörðuvallaskóla er 5 ára í ár og er staðsettur í efri byggð Kópavogs. Kórmeðlimir eru á aldrinum 8 - 13 ára og árlega æfa um eða yfir 50 börn með kórnum. Fyrir utan söng á skólaskemmtunum þá syngur kórinn við fjölbreytt tækifæri utan skóla s.s. á Aðventuhátíð Kópavogsbæjar og árlegum tónleikum á Barnamenningarhátíð í Kópavogi. Á 70 ára afmæli Kópavogs haustið 2023 frumfluttu barnakórar Kópavogs safn nýrra verka eftir íslensk tónskáld í Salnum.
Kórinn tekur jafnan þátt í Landsmótum íslenskra barnakóra sem haldin eru á vegum Tónmenntakennarafélags Íslands, nú síðast í Kópavogi vorið 2023 og þar áður á Hvolsvelli haustið 2024. Kór Hörðuvallaskóla hlakkar til að endurnýja kynnin við Hörpu með nýja kórmeðlimi innanborðs. Það er dýrmæt menningarupplifun að fá tækifæri til að syngja í þessu glæsilega tónlistarhúsi. Kór Hörðuvallaskóla færir FÍK/Félagi íslenskra kórstjóra kærar þakkir fyrir framtakið.
Promoter
Harpa
This event is free
What's on
Saturday 25. April - 14:30
Upcoming events in Harpa
Hörpuhorn is an elegant open space, by the glass facade on the first floor, with a view of the city centre, the sea and the mountains. In Hörpuhorn, there are many possibilities for performing concerts for all musical genres.
