Upprásin

Tónleikaröð tileinkuð grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.

Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík, Rás 2 og Landsbankann, stendur fyrir nýrri tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.

Tónleikaröðin kallast Upprásin og fer fram í Kaldalóni eitt þriðjudagskvöld í mánuði veturinn 2024-2025. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar

Harpa styrkir tónleikaröðina með því að veita aðstöðu, tækjabúnað og tæknimann auk utanumhalds. Tónlistarborgin Reykjavík greiðir laun tónlistarfólks og styður við skrásetningu viðburðanna og Rás 2 sér um að kynna þá, m.a. í þættinum Ólátagarði. Tónlistarfólkið sem kemur fram hverju sinni fær tilbúnar upptöku frá tónleikunum og styrkir Landsbankinn hljóðvinnsluna. Stúdíó Sýrland kemur einnig að viðburðinum, en nemendum þeirra sem læra hljóðtækni býðst að koma í starfsnám í Hörpu alla daga sem Upprásin fer fram.

Opið verður fyrir umsóknir frá 6. maí til og með 20. maí og er allt tónlistarfólk sem skilgreinir sig sem grasrót í íslensku tónlistarlífi, af öllum kynjum og þjóðernum, hvatt til að sækja um. Umsóknarfrestur er liðinn.

Valnefnd fer yfir innsendar umsóknir og velur það tónlistarfólk sem kemur fram í tónleikaröðinni en þrjár hljómsveitir koma fram á hverju kvöldi. Valnefndina skipa Karl Sölvi Sigurðsson fyrir hönd Rásar 2, Ása Dýradóttir fyrir hönd Tónlistarborgarinnar Reykjavík, Sóley Stefánsdóttir fyrir hönd dagskrárráðs Hörpu og Ása Berglind Hjálmarsdóttir verkefnastjóri dagskrárgerðar í Hörpu. Nánari upplýsingar veitir asaberglind@harpa.is.

Upprásin - grasrótartónleikaröð 2023

Kaldalón

Kaldalón hentar sérstaklega vel fyrir minni tónleika, ráðstefnur, fundi og fyrirlestra. Salurinn er með hallandi sætum og hægt er að sýna myndbönd á stóru sýningartjaldi. Norðurbryggja, fyrir framan Kaldalón, skartar stórkostlegu útsýni yfir smábátahöfnina og hentar afar vel fyrir ýmis konar móttökur og sýningar.

Spurt og svarað