Myndatökur í Hörpu
Harpa er margverðlaunað listaverk sem milljónir manna hafa heimsótt frá opnun. Húsið er mjög eftirsótt til hvers kyns myndatöku en mikilvægt er að hafa í huga að glerhjúpur hússins er höfundarréttarvarinn.
Það er ekki leyfilegt að taka myndir eða vera með upptökur i í Hörpu, hvorki innanhúss né utan, án tilskilins leyfis nema um sé að ræða persónulegar myndatökur. Persónulegar myndatökur eru til dæmis fermingarmyndatökur, stúdentsmyndatökur og brúðkaupsmyndatökur þar sem myndefnið er ætlað til einkanota.
Harpa er höfundarréttarvarin og þurfa ljósmynda- og upptökuverkefni að vera borin undir framkvæmdastjórn Hörpu, hönnuði og arkitekta hússins. Tekið er gjald fyrir myndatökur og upptökur fyrir stærri verkefni.
Sækja þarf um leyfi fyrir eftirfarandi:
- Myndatökur í kynningarskyni, s.s. fyrir starfsmannamyndatökur fyrirtækja, einstaklingsmyndatökur til að nota á opinberum vettvangi, hvers lags auglýsingamyndir fyrir stór og smá fyrirtæki.
- Allar upptökur á tónleikum, hvort sem um er að ræða hljóð eða mynd eru stranglega bannaðar nema með sérstöku leyfi.
- Persónulegar myndatökur í opnum rýmum eru leyfðar svo framarlega sem þær trufli ekki starfsemi hússins. Best er að senda inn fyrirspurn með dag- og tímasetningu til að myndatakan skarist ekki á við viðburð í húsi.
- Að fengu leyfi er mikilvægt að hönnuða og arkitekta hússins sé rétt getið: Arkitektar: Henning Larsen Architects og Batteríið arkítektar. Hönnun og þróun á glerhjúp: Ólafur Elíasson og Stúdíó Ólafs Elíassonar í samstarfi við Henning Larsen Architects.
Fyrirspurnir vegna leyfis til mynda- eða upptöku skulu sendar á markadsdeild@harpa.is.