12. maí 2023, 00:00

Lokanir vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins

Dagana 16. og 17. maí mun leiðtogafundur Evrópuráðsins fara fram í Hörpu, sem verður alfarið lokuð vegna fundarins mánudag - miðvikudags, en opnar aftur á fimmtudaginn. Umhverfis Hörpu verður einnig talsvert af lokunum sem taka gildi fyrir viðburðinn.

mynd

Nánar um lokanirnar [@portabletext/react] Unknown block type "span", specify a component for it in the `components.types` prop
Leiðtogafundur Evrópuráðsins verður haldinn í Reykjavík dagana 16. til 17. maí 2023. Ætla má að fundurinn hafi nokkur áhrif á daglegt líf íbúa á höfuðborgarsvæðinu þessa daga. Af öryggisástæðum verða götur í kringum Hörpu lokaðar fyrir umferð ökutækja á meðan á fundinum stendur en hægt verður að fara um svæðið gangandi og á hjóli.
Þetta á hins vegar ekki við um svæðið næst Hörpu, sem verður lokað almenningi.
Einnig má gera ráð fyrir umferðartöfum um allt höfuðborgarsvæðið vegna aksturs sendinefnda í lögreglufylgd til og frá Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli á þessum dögum. Áhrifin verða hvað mest síðdegis á þriðjudeginum og miðvikudeginum.

[@portabletext/react] Unknown block type "span", specify a component for it in the `components.types` prop

[@portabletext/react] Unknown block type "span", specify a component for it in the `components.types` prop

Fréttir