Ókeypis viðburður, Sígild og samtímatónlist, Tónlist

Event poster

Velkomin heim | Sólveig Stein­þórs­dóttir, fiðlu­leikari

Verð

0 kr

Næsti viðburður

sunnudagur 13. júlí - 16:00

Salur

Hörpuhorn

Sólveig Steinþórsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1995 og hóf fiðlunám þriggja ára gömul við Allegro Suzukitónlistarskólann undir handleiðslu Lilju Hjaltadóttur og lærði síðar hjá Guðnýju Guðmundsdóttur við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún lauk bakkalárprófi frá Listaháskólanum í Berlín árið 2019 og meistaragráðu frá Listaháskólanum í Zürich árið 2021. Hún hefur leikið einleiks- og kammertónlist á Íslandi, Þýskalandi, Sviss og Ítalíu og komið fram á ýmsum hátíðum, þar á meðal Bodensee Festival, Festival alte Musik Zürich og Tónlistarhátíð unga fólksins, og á tónleikaröðum hjá Kammermúsíkklúbbnum, Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni og Tíbrá í Salnum í Kópavogi. Hún hefur einnig spilað sem barokkfiðluleikari með ýmsum hópum, t.d. Barokkbandinu Brák, Zürcher Barockorchester, Akademie für alte Musik Berlin og J. S. Bach Stiftung St. Gallen. Í júní 2023 gaf hollenska útgáfufyrirtækið Challenge Classics út upptöku á flutningi hennar á fiðlusónötum Ysaÿe.

Aðgangur er ókeypis og öll innilega velkomin.

Velkomin heim er tónleikaröð á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu.

Viðburðahaldari

Harpa

Miðaverð er sem hér segir

A

0 kr.

Dagskrá

sunnudagur 13. júlí - 16:00

Hörpuhorn

Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.

the inside of a large building with a lot of windows and chairs .

eventTranslations.event-showcase-hörpuhorn