Ókeypis viðburður, Sígild og samtímatónlist, Tónleikar

Event poster

Velko­min heim | Gunnlaugur Bjarnason

Price

0 kr

Next event

Sunday 5th July - 16:00

Venue

Hörpuhorn

Gunnlaugur Bjarnason - kemur fram í tónleikaröðinni Velkomin heim sunnudaginn 5. júlí klukkan 16. Tónleikaröðin er á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu.

Tónleikarnir fara fram í Hörpuhorni, á annarri hæð Hörpu. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

--

Selfyssingurinn Gunnlaugur Bjarnason hóf söngferil sinn í bílskúrsböndum en flutti sig snemma yfir í klassískan söng. Árið 2020 lauk hann framhaldsprófi í klassískum söng frá Menntaskóla í tónlist og þremur árum síðar lauk hann meistaranámi í sama fagi frá Konunglega tónlistarháskólanum í Den Haag árið 2023.

Gunnlaugur hefur á síðustu árum stimplað sig rækilega inn í íslensku söngsenuna og hefur tekið þátt í fjölmörgum óperuuppfærslum á Íslandi, núna síðast í La Bohème með sviðslistahópnum Óði og í óperunni Sæmundi með hópnum Animato.

Gunnlaugur hefur einnig komið fram á tónlistarhátíðum, bæði hér heima og úti, til dæmis Bergen Festspillerne, Sönghátíð í Hafnarfirði, Þjóðlagahátíð á Siglufirði og fleiri. Þá hefur Gunnlaugur líka unnið náið með tónskáldum að frumflutningi nýrri verka.

Gunnlaugur er einnig íslenskufræðingur að mennt og sem slíkur hefur hann,við góðan orðstír, stýrt hlaðvarpinu Flimtan og fáryrði með Ármanni Jakobssyni, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda.

Promoter

Harpa

This event is free

What's on

Sunday 5. July - 16:00

Hörpuhorn

Hörpuhorn is an elegant open space, by the glass facade on the first floor, with a view of the city centre, the sea and the mountains. In Hörpuhorn, there are many possibilities for performing concerts for all musical genres.

the inside of a large building with a lot of windows and chairs .