Ókeypis viðburður, Sígild og samtímatónlist, Tónleikar

Event poster

Velko­min heim | María Sól In­gólf­s­dót­tir

Price

0 kr

Next event

Sunday 26th July - 16:00

Venue

Austurhlið, 5th floor

María Sól Ingólfsdóttir, sópransöngkona, kemur fram í tónleikaröðinni Velkomin heim sunnudaginn 26. júlí klukkan 16. Tónleikaröðin er á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu.

Tónleikarnir fara fram í Hörpuhorni, annarri hæð Hörpu. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

---

María Sól Ingólfsdóttir lauk nýverið meistaraprófi í söng frá Hochschule für Musik
Saar en áður hafði hún lokið bakkalárgráðu í söng frá Listaháskóla Íslands árið 2019
og framhaldsstigsprófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 2016. Hún hefur einnig
seinustu ár verið nemandi Haus of Shmizzay í New York. 

María Sól hefur komið fram á fjölmörgum tónleikum, tónlistarhátíðum og í óperuuppfærslum á Íslandi. Hún hlaut Grímuverðlaunin sem söngvari ársins árið 2021 fyrir hlutverk sitt í verkinu Ekkert er sorglegra en
manneskjan
eftir Adolf Smára Unnarsson og Friðrik Margrétar-Guðmundsson og árið 2019 hlaut hún verðlaun úr styrktarsjóði Halldórs Hansen fyrir framúrskarandi tónlistarnema.

María Sól er virkur þátttakandi í menningarlífi Saarlands í Þýskalandi þar sem hún
hefur verið búsett seinustu ár. Hún hefur sungið á öllum helstu tónlistarhátíðum í og
við Saarbrücken, sem og við óperuna í Saarländische Staatstheater, og var þar að
auki
valin
fulltrúi
Richard Wagner-félagsins í Saarlandi á Bayreuth
Festspiele-óperuhátíðina árið 2024.

Meðal verkefna framundan er flutningur á Gurrelieder eftir A. Schönberg í Schönberg
Center í Vín, tónleikar á tónlistarhátíðinni Musikfestspiele Saar í Schengen
og hlutverk Konstanze í Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir W.A. Mozart í Bad Orb. 

María Sól Ingólfsdóttir heillar með kraftmikilli rödd og töfrandi framkomu. Hún trúir því
að tónlist sé galdur. 

Promoter

Harpa

This event is free

What's on

Sunday 26. July - 16:00