Kór, Ókeypis viðburður

Event poster

Kórinn Bjartsýni syn­gur í Hör­puhorni

Price

0 kr

Next event

Friday 1st May - 16:00

Venue

Hörpuhorn

Kórinn Bjartsýni syngur í Hörpuhorni, föstudaginn 1.maí kl. 16:00 - 16:30. Efnisskráin innheldur þjóðlög og tónlist úr ólíkum áttum eftir Björgvin Halldórsson, Magnús Eiríksson, Spilverk þjóðanna og fleiri. Einsöngvarar eru Dagbjört Andrésdóttir og Iva Adrechim. Gísli Helgason leikur á blokkflautu, Einar Magnússon og Mikael Árni Rafaelsson á trommur og Mikael Árni Rafalesson leikur á kazzoo og dansar. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð í Hörpuhorni sem Félag íslenskra kórstjóra gengst fyrir í samstarfi við Hörpu. Tónleikar fara fram 25. apríl, 1. og 3. maí.


-

Kórinn Bjartsýni hóf göngu sína í janúar 2025. Hann hefur margsinnis komið fram síðan þá, t.d. í Hörpu, í Iðnó, í Mannréttindahúsinu, við afhendingu hvatningarverðlauna ÖBÍ, á viðburðum Blindrafélagsins og víðar. Kórinn hlaut Hvatningarverðlaun listhóps Listar án landamæra 2025.

Promoter

Harpa

This event is free

What's on

Friday 1. May - 16:00