Kammertónlist, Klassík, Sígild og samtímatónlist, Sígildir sunnudagar, Tónlist

Price
5.500 kr
Next event
Sunday 2nd May - 16:00
Venue
Norðurljós
Flytjendur:
Strengjakvartettinn Meta4
Antti Tikkanen, fiðla
Minna Pensola, fiðla
Atte Kilpeläinen, víóla
Tomas Djupsjöbacka, selló
Það er stórviðburður að einn af eftirsóttustu strengjakvartettum Norðurlandanna, Meta4 kvartettinn frá Finnlandi komi fram á lokatónleikum starfsársins. Er þetta jafnframt fyrsta sinn í 10 ár sem alþjóðlegur kvartett spilar á vegum Kammermúsíkklúbbsins.
Meta4 hefur starfað frá árinu 2001 og á fyrsta áratug kvartettsins vann hann til verðlauna í Moskvu og í Vínarborg og var valinn af BBC sem New Generation Artist. Kvartettinn leikur reglulega í fremstu tónleikahúsum heims og hefur gefið út upptökur með strengjakvartettum eftir Haydn, Bartók og Saariaho auk strengjaoktetta eftir Mendelssohn og Enescu ásamt Gringolts kvartettinum.
Á efnisskrá er Blueprint eftir hina bandarísku Caroline Shaw (fædd 1982) sem verður spilað í fyrsta sinn á Íslandi. Þetta 7 mínútna verk er bæði innhverft og dramatískt og vitnar í Strengjakvartett op. 18 nr. 6 eftir Beethoven, sem er næsta verkið á efnisskránni. Eftir hlé flytur kvartettinn Voces intimae eftir Jean Sibelius, þjóðartónskáld Finnlands. Íslenskir tónleikagestir þekkja flestir sinfóníurnar og tónaljóðin eftir Sibelius en líkt og Strauss samdi hann aðallega sinfóníska tónlist og tiltölulega lítið af kammermúsík. Sibelius lést árið 1957, sama ár og Kammermúsíkklúbburinn var stofnaður, og því við hæfi að enda 70. starfsár klúbbsins með verki eftir þetta dáða tónskáld.
Meðlimir Meta4 eru eftirsóttir listamenn. Sellóleikarinn Tomas Djupsjöbacka er einnig hljómsveitarstjóri, víóluleikarinn Atte Kilpeläinen er leiðari víóludeildar Heilsinkifílharmóníunnar og kennari við Sibeliusakademíuna, og fiðluleikarahjónin Antti Tikkanen og Minna Pensola eru listrænir stjórnendur einnar stærstu tónlistarhátíðar á Norðurlöndunum: Kuhmo kammertónlistarhátíðarinnar þar sem 70 kammertónleikar fara fram á tveimur vikum í friðsælli finnskri náttúru.
Kammermúsíkklúbburinn er í samstarfi við Sígilda sunnudaga í Hörpu.
Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum.
Sjá nánari upplýsingar og efnisskrá á heimasíðu Kammermúsíkklúbbsins, kammer.is
Promoter
Kammermúsíkklúbburinn
Ticket prices are
A
5.500 kr.
A
5.500 kr.
This unique and beautiful hall on the second floor of Harpa is suitable for concerts, conferences, exhibitions, annual festivals and all kinds of gatherings. Norðurljós is the perfect setting and offers a wide range of seating arrangements and layouts.

Hleður
Upcoming events in Harpa