12th October 2023

Heims­viðburður í Hörpu

Bamberg sinfóníuhljómsveitin ásamt Hélène Grimaud undir stjórn Jakub Hrůša.

Bamberg sinfóníuhljómsveitin ásamt Hélène Grimaud undir stjórn Jakub Hrůša á tónleikum í Eldborg þann 20. apríl 2024.

Ein fremsta sinfóníuhljómsveit Þýskalands, Bamberg sinfónían, kemur fram í fyrsta sinn á Íslandi 20. apríl 2024. Hljómsveitarstjóri á tónleikunum verður hinn tékkneski Jakub Hrůša sem nýlega var ráðinn næsti tónlistarstjóri Konunglega óperuhússins í Covent Garden í London. Hrůša hefur á síðustu árum náð miklum árangri í starfi sínu sem aðalhljómsveitarstjóri Bamberg sinfóníunnar auk þess sem hann er eftirsóttur gestastjórnandi margra bestu hljómsveita heims á borð við fílharmóníuhljómsveitir Vínar, Berlínar og New York og sinfóníuhljómsveitar Chicago.  

Bamberg sinfónían undir stjórn Jakub Hrůša hlaut International Classical Music Award (ICMA) árið 2022 fyrir upptöku á fjórðu sinfóníu Antons Bruckner og aftur árið 2023 fyrir upptökur af Sinfóníu nr. 1 eftir Hans Rott. Þá var Jakub Hrůša var valinn stjórnandi ársins 2023 af Opus Klassik, klassísku tónlistarverðlaunum Þýskalands. 

Einleikari á tónleikunum í píanókonseti Roberts Schumann verður hinn margverðlaunaði franski píanóleikari Hélène Grimaud. Eldmóður hennar í tónlistinni endurspeglast einnig í starfi hennar á sviði umhverfisverndar og mannréttinda sem hún er jafnframt þekkt fyrir. 

Efnisskráin er vafalítið sérstakt ánægjuefni fyrir unnendur tónlistar Richards Wagner því á tónleikunum flytur Bamberg prelúdíu úr fyrsta þætti Lohengrin og Tannhäuser-forleikinn.Einnig verða flutt verk eftir tvo samtímamenn Wagners, Sinfóníu nr. 3 eftir Johannes Brahms og píanókonsert Roberts Schumann í flutningi Hélène Grimaud.

Tónleikar Bamberg sinfóníunnar á Íslandi eru þeir fyrstu í tónleikaferð sveitarinnar til Bandaríkjanna en úr Hörpu liggur leiðin meðal annars í Carnegie Hall í New York.  

Missið ekki af viðburði á heimsmælikvarða í Hörpu.  

Forsala á tónleikana hefst fyrir meðlimi í Hörpusveitar þann 18. október og almenn miðasala hefst 19. október.

Skráðu þig í Hörpusveitina hér.

Frét­tir