

Hagnýtar upplýsingar fyrir veisluhöld
Björtuloft er einstaklega fallegur salur á tveimur hæðum (6. og 7. hæð) með frábæru útsýni yfir höfnina og miðbæ Reykjavíkur.
Á 7. hæð geta allt að 130 manns setið til borðs. Fyrir standandi veislur tekur salurinn (báðar hæðir) allt að 200 manns.
Hér fyrir neðan eru hagnýtar upplýsingar um Björtuloft.
Salarleiga
Grunnverð fyrir leigu á Björtuloftum er 263.000 kr. m/vsk. Verðið miðast við heilsdagsleigu frá kl. 08:00-18:00. Ef um kvöldviðburð er að ræða bætist við 10% kvöldálag, kr. 26.300.
Innifalið í salarleigu er:
Viðburðir geta staðið til kl. 01:00. Eftir kl. 22:00 þarf að greiða aukalega fyrir öryggisgæslu.
Smelltu hér til að skoða myndir af salnum og útfærslumöguleika.
Viðbótarbúnaður og tækni
Verkefnastjórar Hörpu útbúa sértækt tæknitilboð fyrir hvern viðburð út frá dagskrá og þörfum viðskiptavinar.
Kostnaður við allan viðbótarbúnað s.s. hljóðkerfi fyrir skemmtiatriði, DJ eða hljómsveit, ásamt vinnu tæknimanna, bætist við grunnverð. Sjá nánar á bls. 1-2 í tæknipakka. Athugið að verð eru til viðmiðunar og áætluð.
Við mælum ávallt með að tæknimaður sé á staðnum þegar boðið er upp á skemmtiatriði. Með því er tryggð fagleg framkvæmd og góð upplifun gesta.
Tæknipakki
Veitingar
Allur matur og drykkur í Hörpu er í höndum KH Veitinga, sem bjóða upp á fjölbreytt úrval veislurétta og drykkja. Matseðlar eru sérsniðnir að þörfum viðskiptavina hverju sinni. Athugið að ekki er heimilt að koma með eigin veitingar.
STEF-gjöld
Hörpu er skylt að innheimta STEF-gjöld sem miðast við fjölda gesta. Kostnaður kemur fram í tæknipökkum.
Óheimilt
Vinsamlega athugið að óheimilt er að nota eftirfarandi í Hörpu (ekki tæmandi listi):
Nánari upplýsingar má finna í viðskiptaskilmálum Hörpu hér fyrir neðan.
Skilmálar