klassík, rokk og popp, sígild og samtímatónlist, sinfóníuhljómsveit, tónlist
Baggalútur og Sinfó í Eldborg
Verð
7.900 - 15.900 kr
Tímabil
13. júní - 15. júní
Salur
Eldborg
FRAM KOMA
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Baggalútur
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Ross Jamie Collins
Tvær ástsælustu hljómsveitir landsins, gleði- og aðventusveitirnar Sinfóníuhljómsveit Íslands og Baggalútur, sameina krafta sína á stórtónleikum í Eldborg í júní. Hefur það verið draumur beggja að leika saman á stóra sviðinu um árabil — og verður það nú loksins að veruleika. Leikin verða fjölmörg gríðarlega vinsæl, fjörug, hugljúf og ástsæl lög Baggalúts á borð við Kósíkvöld í kvöld, Laugardagskvöld og önnur kvöld — ásamt köntrískotnum lögum af rúmlega tveggja áratuga ferli. Lögin eru listilega útsett fyrir hljómsveitina af vandvirku fagfólki — þar sem listrænir núansar og blæbrigði í melódíum og textum fá notið sín til fulls.
Reynt verður á þanþol og taugar hljóðfæraleikara, hraðamet í hljóðfæraslætti slegin auk þess sem góðir gestir alla leið frá útlöndum spreyta sig á framandi hljóðfærum á borð við banjó og óbó. Óhætt er að lofa skemmtun á heimsmælikvarða fyrir alla unnendur sinfónískrar köntrítónlistar. Hljómsveitarstjóri er Ross Jamie Collins, staðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
13.900 kr.
B
10.900 kr.
C
8.900 kr.
D
7.900 kr.
X
15.900 kr.
Dagskrá
fimmtudagur 13. júní - 20:00
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.
Hápunktar í Hörpu