Hátíðir, Myrkir músíkdagar, Sígild og samtímatónlist

Verð
3.900 kr
Næsti viðburður
föstudagur 30. janúar - 20:30
Salur
Norðurljós
Tónleikar Caput hópsins á Myrkum músíkdögum er einn af árlegum fastapunktum hátíðarinnar og býður hópurinn að þessu sinni upp á fimm spennandi verk, Absentia eftir Huga Guðmundsson þar sem Gerður Gunnarsdóttir fiðluleikari leikur einleik og Eyland eftir Veronique Vöku en þar verður Jónas Ásgeir Ásgeirsson harmonikkuleikari einleikari. Jafnframt verða flutt nýleg kammerverk eftir Gunnar Andreas Kristinsson og Gísla Magnússon, ásamt frumflutningi á nýju verki eftir tónskáldatvíeykið「ronju」& Masaya Ozaki.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
https://www.darkmusicdays.is/eventscalendar/2026/caput
Viðburðahaldari
Myrkir músíkdagar
Miðaverð er sem hér segir
A
3.900 kr.
Dagskrá
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót. Norðurljós er hin fullkomna umgjörð og býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika.

Næstu viðburðir í Hörpu