Ókeypis viðburður, Sígild og samtímatónlist, Tónleikar, Tónlist
Verð
0 kr
Næsti viðburður
sunnudagur 27. júlí - 16:00
Salur
Hörpuhorn
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, sópran, kemur fram í tónleikaröðinni Velkomin heim sunnudaginn 27. júlí klukkan 16. Tónleikaröðin er á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu.
Tónleikarnir fara framí Hörpuhorni, á annarri hæð Hörpu.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
------
Hanna Ágústa var sigurvegari söngkeppninnar Vox Domini í byrjun árs 2024 og hlaut þar einnig titillinn Rödd ársins. Hanna er listamanneskja Borgarbyggðar 2024. Hún fór með hlutverk Óla Lokbrár í uppsetningu Kammeróperunnar á Hans og Grétu í Tjarnarbíói í desember 2023 og var einsöngvari á Reykholtshátíð 2023 og 2024. Hún hefur einnig sungið víða í Evrópu, en hún fór meðal annars með hlutverk Papagenu í Töfraflautunni í Theater Rudolstadt sumarið 2021. Hún var auk þess einn sigurvegara keppninnar Ungra einleikara á vegum LHÍ og SÍ og söng einsöng á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í maí 2022.
Hanna lauk bakkalárprófi frá Tónlistarháskólanum í Leipzig árið 2022 þar sem hún nam söng undir leiðsögn Prof. Carola Guber. Áður hafði hún stundað söngnám við Söngskólann í Reykjavík og lauk þaðan framhaldsprófi undir leiðsögn Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur. Vorið 2016 hlaut Hanna styrk úr Minningarsjóði Vilhjálms Vilhjálmssonar til náms í Söngskólanum og í febrúar 2021 hlaut Hanna styrk úr minningarsjóði Heimis Klemenzsonar.
Viðburðahaldari
Harpa
Miðaverð er sem hér segir
A
0 kr.
Dagskrá
sunnudagur 27. júlí - 16:00
Hörpuhorn er glæsilegt opið rými, við glerhjúpinn á annarri hæð, með útsýni yfir miðborgina, hafið og fjöllin. Í Hörpuhorni eru margir möguleikar á útfærslu tónleika fyrir allar tónlistarstefnur.
eventTranslations.event-showcase-hörpuhorn