Börn og Fjölskyldan, Klassík, Sígild og samtímatónlist, Sinfóníuhljómsveit, Tónlist
Verð
3.100 - 3.800 kr
Næsti viðburður
laugardagur 14. febrúar - 14:00
Salur
Eldborg
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjóri: Ingunn Korsgård Hagen
Trash Slagverksdúó
Thomas og Jesper eru slagverkssnillingar sem mynda tvíeykið Trash. Þeir leiða gesti Litla tónsprotans, ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands, inn í kraftmikinn og spennandi hljóðheim þar sem klassískur flutningur rennur saman við óhefðbundin hljóðfæri og einstaka hljóðgjafa. Slagverksleikararnir nota m.a. ruslatunnur, hjól og rör á frumlegan og skapandi hátt þar sem hávaða er breytt í hljómandi fegurð. Tónleikagestum er boðið að stíga inn í spennandi og ófyrirsjáanlegt ævintýri sem heldur hlustandanum föngnum frá upphafi til enda.
Á dagskránni eru verk eftir Rossini, Grieg, Khatsjatúrjan, Brahms og fleiri klassíska meistara en skapandi endurvinnsla setur sterkan svip á tónleikana.
Tónleikarnir, sem eru sniðnir að ungum áheyrendum, eru um klukkustundarlangir og án hlés.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir
A
3.800 kr.
B
3.100 kr.
C
3.100 kr.
D
3.100 kr.
X
3.800 kr.
Dagskrá
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn er sérhannaður til tónleikahalds, en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fyrirlestra.
Næstu viðburðir í Eldborg