tónlist, klassík, sinfóníuhljómsveit

Ungsveitin leikur Berlioz - Ungsveit SÍ

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

3.000 - 5.300 kr

Næsti viðburður

sunnudagur 24. september - 17:00

Salur

Eldborg

EFNISSKRÁ
Hector Berlioz Symphonie fantastique (Draumórasinfónían)

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Nathanaël Iselin

Ungsveit SÍ 

Draumórasinfónía Hectors Berlioz er eitt af lykilverkunum í tónlist rómantíska tímans; ævintýraleg frásögn í tónum af ástarraunum ungs skálds sem hverfur inn í veröld trylltra draumóra með geigvænlegum afleiðingum. Verkið byggir á reynslu tónskáldsins sjálfs af ást og hugarvíli, en hann var 23 ára þegar hann hófst handa við það. Með Draumórasin­ fóníunni var brotið blað í tónlistarsögunni, því svo nákvæm, sjálfsævisöguleg atburðarás hafði aldrei áður verið rakin í sinfónísku verki af slíkri stærðargráðu.

Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands hélt sína fyrstu tónleika haustið 2009 í Háskólabíói og hefur síðan vakið verðskuldaða athygli en sveitin hlaut viðurkenninguna „Bjartasta vonin“ á Íslensku tónlistarverðlaununum 2016. Tæplega hundrað ungmenni úr tónlistarskólum landsins hafa verið þátttakendur ár hvert á hljómsveitarnámskeiði Sinfóníuhljómsveitar Íslands og náð undraverðum árangri undir leið­ sögn framúrskarandi hljóðfæraleikara og hljómsveitarstjóra. Eliza Reid forsetafrú tók að sér hlutverk verndara Ungsveitarinnar á tíu ára afmælisári sveitarinnar árið 2019.

Í Ungsveitinni eru gerðar strangar kröfur um faglega frammistöðu enda hafa tónleikar Ungsveitarinnar vakið eftirtekt fyrir samstilltan flutning og magnaða túlkun. Hljómsveitin í ár er skipuð tæplega 100 hljóðfæraleikurum en þátttakendur voru valdir úr stórum hópi ungmenna sem léku um sæti í sveitinni með prufuspili.


Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir:

A

5.300 kr.

B

3.000 kr.

C

3.000 kr.

D

3.000 kr.

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.