tónlist, klassík, sinfóníuhljómsveit

Ungir einleik­arar 2024 - Sinfón­íu­hljóm­sveit Íslands

Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða
Kaupa miða

Verð

3.000 - 5.300 kr

Næsti viðburður

föstudagur 26. apríl - 19:30

Salur

Eldborg

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Petri Sakari

Sigurvegarar úr einleikarakeppni SÍ og LHÍ

Framtíð tónlistarlífs á Íslandi hvílir á herðum þeirra ungu hljóðfæraleikara og söngvara sem um þessar mundir taka sín fyrstu skref á stóra sviðinu. Það er sérstakt tilhlökkunar­efni þegar framúrskarandi ungmenni stíga fram sem einleikarar með Sinfóníuhljómsveit Íslands og njóta árangurs þrotlausrar vinnu. Í salnum sitja fjölskylda og vinir sem hafa fylgst með tónlistarnáminu um margra ára skeið og fagnaðarlætin í Eldborg eru aldrei einlægari en á þessum skemmtilegu og spennandi tónleikum.

Einleikarar á tónleikunum verða valdir í samkeppni sem haldin er árlega í samstarfi við Listaháskóla Íslands. Í ár má með sanni segja að listamennirnir ungu séu í góðum höndum því það er finnski hljómsveitarstjórinn Petri Sakari sem heldur um tónsprotann. Hann var aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands tvívegis, á árunum 1988 til 1993 og aftur frá 1996 til 1998 og hefur í yfir 35 ár verið einn af helstu samstarfsmönnum hljómsveitarinnar.


Viðburðahaldari

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Miðaverð er sem hér segir:

A

5.300 kr.

B

3.000 kr.

C

3.000 kr.

D

3.000 kr.

Eldborg

Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.