tónlist, jól, jól

Þorláksmessutónleikar Bubba 2023
Verð
6.990 - 11.990 kr
Næsti viðburður
laugardagur 23. desember - 22:00
Salur
Eldborg
Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra
langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað
sér aðventuna án þeirra.
Tónleikarnir eru merkilegir fyrir þær sakir að þetta
verður í 39. sinn sem Bubbi stendur fyrir Þorláksmessutónleikum.
Fyrstu
tónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985. Þótt staðsetning tónleikana
hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn og
perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni
einstöku snilld.
Þorláksmessutónleikar Bubba verða á eftirtöldum stöðum
6. desember Hlégarður Mosfellsbæ
7. desember Hotel Selfoss
8. desember
Hljómahöll Reykjanesbæ
19. desember Bíóhöllin Akranesi
21. desember Hof
Akureyri
23. desember Harpa Reykjavík
Hlökkum til að sjá þig.
Viðburðahaldari
Vinir hallarinnar
Miðaverð er sem hér segir:
A
9.990 kr.
C
7.990 kr.
D
6.990 kr.
X
11.990 kr.
Dagskrá
Eldborg
Eldborg er stærsti salur Hörpu þar sem öll hönnun og útfærsla skapar glæsilega umgjörð. Salurinn tekur allt að 1600 manns í sæti. Í Hörpuhorni, við glerhjúpinn á annarri hæð, er unnt að vera með standandi kaffiveitingar eða móttökur tengdar Eldborg.

Hápunktar í Hörpu