tónlist, jól, jól

Þór Breiðfjörð - Nat King Cole Jól
Verð
8.990 kr
Næsti viðburður
miðvikudagur 13. desember - 21:00
Salur
Norðurljós
Þór Breiðfjörð bregður á leik með sömu góðu félögum og í fyrra. Fluttar verða sígildar perlur Nat King Cole og önnur vinsæl jólalög, útsett í anda tríósins ástsæla. Sem fyrr bregður Þór á leik með óvæntum uppátækjum og spjalli við áhorfendur og leynigesti sem laumast í heimsókn. Tónleikarnir í fyrra færðust, vegna mikillar eftirspurnar, frá Björtuloftum niður í Norðurljós og þar verður jólastundin í ár.
Þessir persónulegu og hjartnæmu tónleikar hafa átt sérstakan sess í hjarta margra Íslendinga í gegnum árin og platan “Jól í stofunni” hljómar víða dagana fyrir jól.
Með Þór eru Jón Rafnsson, Kjartan Valdemarsson og Ásgeir Ásgeirsson, allir meðal okkar virtustu djasstónlistarmanna. Ásgeir brá á leik í fyrra með strengjahljóðfærum frá botni Miðjarðarhafs þannig að vitringarnir sjálfir virtust mættir til að spila fyrir jesúbarnið.
Þór Breiðfjörð –
söngur/vocal
Ásgeir Ásgeirsson– gítar/guitar
Kjartan Valdemarsson – píano/piano
Jón Rafnsson – kontrabassi/double bass
Nánar um listamennina:
Þór Breiðfjörð hefur flutt lög fyrir landsmenn í anda Nat King Cole og fleiri flauelsbarka í mörg ár. Hann á farsælan feril að baki í alþjóðlegum söngleikjum auk þess að hafa unnið Grímuna hér á landi fyrir hlutverk Jean Valjean í Vesalingunum (Þjóðleikhúsið), grímutilnefningu fyrir hlutverk Óperudraugsins í Eldborg og gríðarlega farsæla uppsetningu á Jesus Christ Superstar í Eldborg þar sem Þór söng hlutverk Júdasar. Í febrúar 2024 frumsýnir Þór og leikur aðalhlutverkið í nýja Íslenska gamanrokksöngleiknum Hark! Þór hefur gefið út þrjár einmenningsplötur, meðal annars jólaplötuna Jól í stofunni sem hægt er að hlusta á hér: http://bit.ly/thorjol
Ásgeir Ásgeirsson er einn fremsti djassgítarleikari landsins og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir bæði tónsmíðar og plötuútgáfu. Hann spilar reglulega í leiksýningum og fjölda tónleika hér á landi. Hægt er að lesa sér til um hann hér: https://www.tonlistarskolifih.is/kennarar/4
Jón Rafnsson er gríðarlega afkastamikill og farsæll hljóðfæraleikari og plötuútgefandi. Meðal verkefna hans má nefna tríóin Guitar Islancio, DJÄSS og Delizie Italiane. Hægt er að lesa meira um Jón hér: http://jrmusic.is/jon-rafnsson/
Kjartan Valdemarsson er einn af vinsælustu píanistum landsins, bæði í leikhúsi og á alls konar tónleikum. Hann er meðlimur í hljómsveitinni Todmobile, hefur útsett fyrir Stórsveit Reykjavíkur og svo mætti lengi telja. Hægt er að lesa um hann hér: https://is.wikipedia.org/wiki/Kjartan_Valdemarsson
Viðburðahaldari
Þór Breiðfjörð
Miðaverð er sem hér segir:
A
8.990 kr.
Dagskrá
miðvikudagur 13. desember - 21:00
Norðurljós
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót.

Hápunktar í Hörpu