Rekstraraðilar
KH veitingar
KH Veitingar er veisluþjónusta Hörpu sem býður uppá veitingar fyrir alla viðburði svo sem ráðstefnur, fundi, sölusýningar, árshátíðir, brúðkaup, fermingar, erfikaffi og hvers kyns einkasamkvæmi. Starfsfólk KH veitinga hefur áratuga reynslu í veitinga og veislu þjónustu.

Hnoss restaurant
Veitingastaðurinn Hnoss er á jarðhæð Hörpu. Hugmyndafræðin á bak við Hnoss er að skapa vettvang fyrir matarmenningu sem slær í takt við Hörpu. Mikil áhersla er lögð á ferskt hráefni, gæði og góða þjónustu.

La Primavera
Veitingastaðurinn La Primavera er staðsettur á fjórðu hæð í Hörpu með einstöku útsýni yfir höfnina. Veitngastaðurinn er opinn öll fimmtudags- föstudags- og laugardagskvöld. Á La Primavera sameinast matarhefð frá Norður Ítalíu og úrvals íslensk hráefni.

Listval
Listval hefur komið sér fyrir í fallegu rými við aðalinngang á jarðhæð Hörpu. Ætlunin er að skapa rýminu fallega og fágaða umgjörð í formi myndlistarsýninga og gallerís og veita gestum eftirminnilega upplifun og innsýn í það sem íslensk myndlist hefur uppá að bjóða Gestir geta fengið ráðgjöf við val á verkum, fræðst um íslenska myndlist og skoðað bækur um myndlist. Listval verður einnig með viðburðadagskrá með uppákomum þar sem nýjum útgáfum og verkum verður fagnað.

Rammagerðin
Rammagerðin er í glæsilegu verslunarrými á jarðhæð hússins. Basalt Arkitektar sáu um hönnun rýmisins sem er staðsett í austurhlið jarðhæðarinnar. Markmiðið með opnun verslunarinnar er að skapa vettvang fyrir íslenska hönnuði sem vilja koma á framfæri sinni hönnun í listrænu og lifandi rými.

Reykjavik Recording Orchestra
Reykjavík Recording Orchestra (RRO) hefur aðsetur sitt í Hörpu pg samanstendur af hópi fremstu tónlistarmanna og fagfólks í hljóði. RRO sérhæfir sig í upptökum fyrir kvikmyndir, sjónvarp, leiki, fjölmiðla og tónlist úr ýmsum áttum. Harpa hentar því afar vel fyrir starfsemi RRO enda margverðlaunuð fyrir hljóðvist. RRO hefur á þessu ári einnig unnið að verkefnum fyrir Hans Zimmer fyrir Frozen Planet 2 á vegum BBC, Davið Attenborough, Apple TV, Netflix, Amazon, Decca og Deutsche Grammophon auk íslensku myndarinnar Svar við bréfi Helgu.

115 Security
115 Security ehf sér um rekstur bílastæðahúss Hörpu. Bílastæðahúsið er með 545 stæðum sem eru opin allan sólarhringinn og þar af eru 13 hleðslustæði. Stæðin eru björt, upphituð og aðgengi er beint inn í Hörpu.
