Rekstr­ar­að­ilar

KH veitingar

KH Veitingar er veisluþjónusta Hörpu sem býður upp á veitingar fyrir alla viðburði svo sem ráðstefnur, fundi, sölusýningar, árshátíðir, brúðkaup, fermingar, erfidrykkjur og hvers kyns einkasamkvæmi. Starfsfólk KH veitinga hefur áratuga reynslu í veitinga- og veisluþjónustu.

Hnoss restaurant

Veitingastaðurinn Hnoss er á jarðhæð Hörpu. Hugmyndafræðin á bak við Hnoss er að skapa vettvang fyrir matarmenningu sem slær í takt við Hörpu. Mikil áhersla er lögð á ferskt hráefni, gæði og góða þjónustu.

La Primavera

Veitingastaðurinn La Primavera er staðsettur á fjórðu hæð í Hörpu með einstöku útsýni yfir höfnina. Veitingastaðurinn er opinn öll fimmtudags- föstudags- og laugardagskvöld. Á La Primavera sameinast matarhefð frá Norður Ítalíu og úrvals íslensk hráefni.

Rammagerðin

Rammagerðin er í glæsilegu verslunarrými á jarðhæð hússins. Basalt Arkitektar sáu um hönnun rýmisins sem er staðsett í austurhlið jarðhæðarinnar. Markmiðið með opnun verslunarinnar er að skapa vettvang fyrir íslenska hönnuði sem vilja koma á framfæri sinni hönnun í listrænu og lifandi rými.

Ferðalag um Ísland í sýndarveruleika

Saga VR hefur opnað á jarðhæð Hörpu og þar geta gestir farið í spennandi ferðalag um Ísland í þartilgerðum stól með sýndaveruleikagleraugum. Alls eru fjögur myndbönd í boði sem sýna mismunandi ferðalög um landið; Suðurland, Norðausturland, Snæfellsnes og eldgos í Merardölum. Myndböndin eru tekin úr lofti með dróna og 360° myndavél.

Reykjavik Recording Orchestra

Reykjavík Recording Orchestra (RRO) hefur aðsetur sitt í Hörpu pg samanstendur af hópi fremstu tónlistarmanna og fagfólks í hljóði. RRO sérhæfir sig í upptökum fyrir kvikmyndir, sjónvarp, leiki, fjölmiðla og tónlist úr ýmsum áttum. Harpa hentar því afar vel fyrir starfsemi RRO enda margverðlaunuð fyrir hljóðvist. RRO hefur á þessu ári einnig unnið að verkefnum fyrir Hans Zimmer fyrir Frozen Planet 2 á vegum BBC, Davið Attenborough, Apple TV, Netflix, Amazon, Decca og Deutsche Grammophon auk íslensku myndarinnar Svar við bréfi Helgu.

115 Security

115 Security ehf sér um rekstur bílastæðahúss Hörpu. Bílastæðahúsið er með 545 stæðum sem eru opin allan sólarhringinn og þar af eru 13 hleðslustæði. Stæðin eru björt, upphituð og aðgengi er beint inn í Hörpu. Eignaraðild félagsins er eftirfarandi; Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús ohf 77% og Bílastæðasjóður Reykjavíkurborgar 23%.