tónlist, klassík

Portrett af Leilu Josefowicz - Einleikstónleikar í Föstudagsröðinni
Verð
4.200 kr
Næsti viðburður
föstudagur 12. janúar - 18:00
Salur
Norðurljós
EFNISSKRÁ
Matthias Pintscher La linea evocativa: Teikning fyrir
einleiksfiðlu
Johann Sebastian Bach Partíta fyrir einleiksfiðlu nr. 2
EINLEIKARI
Leila Josefowicz
„Tvö snilldarleg einleiksverk fyrir fiðlu, aðskilin af 250 árum.“ Þannig lýsir
Leila Josefowicz, fiðluleikari og staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands
á yfirstandandi starfsári verkunum tveimur sem hljóma á þessum stuttu og
grípandi föstudagstónleikum í Norðurljósum. Matthias Pintscher er í fremstu röð
þýskra samtímatónskálda og eru verk hans flutt um allan heim. La linea
evocativa er innblásið af verkum myndlistarmannsins George Condo og frumflutti
Leila Josefowicz það í galleríi þar sem verk hans voru til sýnis í New York
árið 2020. Partítur Bachs fyrir einleiksfiðlu eru ekki síður framsækin tónlist
þegar þær eru skoðaðar frá réttu sjónarhorni, en í þeim leikur Bach sér að
möguleikum fiðlunnar til þess að skapa fjölradda tónlist, auk þess sem hann
fléttar saman stórbrotnum laglínum og hrífandi dansrytmum. Að loknum flutningi
situr Leila Josefowicz fyrir svörum og gefst tónleikagestum því einstakt
tækifæri til þess að kynnast hinni hliðinni á þessum einstaka listamanni.
Viðburðahaldari
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Miðaverð er sem hér segir:
A
4.200 kr.
Dagskrá
Norðurljós
Þessi einstaki og fallegi salur á annarri hæð Hörpu hentar vel fyrir tónleika, ráðstefnur, sýningar, árshátíðir og hvers kyns mannamót.

Hápunktar í Hörpu